Auglýsing

Áhugaverðir fyrirlestrar um fjölbreytt málefni verða á dagskrá á ráðstefnu SÍGÍ sem fram fer í golfskála Keilis dagana 15.-16. febrúar n.k.

Á ráðstefnunni verður farið yfir mörg svið sem vallarstjórar þurfa að huga að í dag og fáum við til okkar áhugaverða fyrirlesara sem eru leiðiandi í sínu starfi í heiminum.

Meðal fyrirlesara verða.

James Bledge, Vallarstjóri Royal Cinque Ports Golf Club. 

Nánari upplýsingar hér og hér

William Boogaarts sem starfar hjá fyrirtæki í Hollandi og er leiðandi í notkun vélmenna við hirðu á grasvöllum og opnum svæðum í bæjarfélögum.

Nánari upplýsingar hér:

Ágúst Jensson, vallarstjóri St. Leon golfvallarins hjá Golf Club St. Leon-Rot Golfklúbbnum í Þýskalandi

Nánari upplýsingar hér:

Á föstudeginum munum við velta upp spurningum um gervigrasvellina sem eru orðnir vinsælir á Íslandi.  Þar verður reynt að koma öllum sjónarmiðum á framfæri sem viðkoma gervigrasvöllum eins og t.d. notkunargildi, umhverfis og hagkvæmnissjónarmiðum. Dagurinn endar svo með pallborðsumræðum þar sem málið verður krufið til mergjar.

Ráðstefnunni lýkur á laugardeginum með kvöldverði í golfskála Keilis þar sem vallarstjóri ársins verður valinn.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ