/

Deildu:

Auglýsing

Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands auglýsir eftir tveimur þátttakendum, konu og karli, á námskeið ungs íþróttafólks (20 til 35 ára) á vegum alþjóða Ólympíuakademíunnar í Ólympíu í Grikklandi dagana 11. til 25. júní n.k. Að þessu sinni er aðal umfjöllunarefnið ólympíuhugsjónin sem öflugt tæki í þróun og sjálfbærni, en auk þess verður lögð áhersla á ólympísk gildi og áhrif þeirra á umhverfisvernd.

Flugferðir og uppihald eru þátttakendum að kostnaðarlausu. Leitað er að einstaklingum sem náð hafa mjög góðum árangri í íþróttagrein (-greinum) og/eða sinnt kennslu/þjálfun/félagsstörfum innan íþróttahreyfingarinnar, ásamt því að sýna málefnum ólympíuhreyfingarinnar sérstakan áhuga. Umsækjendur þurfa að hafa gott vald á ensku og/eða frönsku og vera fyrirmynd annars æskufólks í hvívetna.

Umsóknum skal skilað, á þar til gerðum eyðublöðum til skrifstofu ÍSÍ, Íþróttamiðstöðinni í Laugardal, ekki seinna en miðvikudaginn 24. febrúar n.k. Hægt er að nálgast umsóknareyðublöðin HÉR.

Umsókn skal skilað á ensku og skulu fylgja henni tvær passamyndir.

Frekari upplýsingar veitir Ragnhildur Skúladóttir sviðsstjóri þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ sími 514 4000, ragnhildur@isi.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ