Símamótið 2016
Andri Þór Björnsson, GR.
Auglýsing

Andri Þór Björnsson komst í gegnum fyrsta stig úrtökumótaraðar fyrir Opna breska meistaramótið sem fram fer á Troon vellinum í júlí. GR-ingurinn sigraði á úrtökumóti sem fram fór í dag á Panmure vellinum í Skotlandi.

Lokastaðan:

Andri Þór lék á 70 höggum eða pari vallar og deildi hann efsta sætinu með Alasdair McDougall frá Skotlandi. Aðeins fjórir kylfingar komust áfram af þessum velli en alls fóru tólf slík mót víðsvegar um Bretlandseyjar. Andri fær nú annað tækifæri á öðru úrtökumóti fyrir risamótið.


Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR lék einnig á þessum velli en hann lék á 75 höggum eða +5 og komst ekki áfram.

Símamótið 2016.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR.


Þórður Rafn Gissurarson úr GR var einu höggi frá því að komast áfram á úrtökumótinu sem hann tók þátt í. Þórður lék á Burhil vellinum á Englandi og þar komust átta efstu kylfingarnir áfram. Þórður var einu höggi frá því sæti en hann lék á +1 eða 73 höggum.

Símamótið 2016
Þórður Rafn Gissurarson, GR



Lokaúrtökumótið sem Andri Þór mun leika á fer fram á fjórum völlum samtímis þann 28. Júní. Þar tryggja þrjú efstu sætin á hverjum keppnisvelli þátttökurétt á Troon og alls komast því 12 kylfingar í gegnum þessa síu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ