/

Deildu:

Axel Bóasson og Saga Traustadóttir. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Axel Bóasson úr Keili og Saga Traustadóttir úr GR fögnuðu sigri á Securitasmótinu á Eimskipsmótaröðinni sem lauk í dag á Grafarholtsvelli. Þetta er fyrsti sigur Sögu á Eimskipsmótaröðinni. Með sigrinum tryggði Axel sér stigameistaratitilinn á Eimskipsmótaröðinni og fær hann 750.000 kr. í verðlaunafé fyrir árangurinn.  Þetta er í annað sinn sem Axel verður stigameistari á Eimskipsmótaröðinni en hann fagnaði þeim titli í fyrsta sinn í fyrra. Keppt var um GR-bikarinn á þessu móti.

Keppni í karlaflokki var mjög hörð og skor keppenda mjög gott við frábærar aðstæður á Grafaraholtsvelli. Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG, sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, endaði í öðru sæti á -7 samtals.  Fjórir erlendir atvinnukylfingar tóku þátt í karlaflokknum og er þetta í fyrsta sinn sem erlendir keppendur taka þátt á móti á Eimskipsmótaröðinni.

Saga Traustadóttir fagnaði sigri í kvennaflokki eftir æsispennandi baráttu við Nínu Björk Geirsdóttur úr GM og Ragnhildi Kristinsdóttur úr GR. Þetta er fyrsti sigur Sögu á Eimskipsmótaröðinni og í fyrsta sinn sem hún er í verðlaunasæti. Ragnhildur Kristinsdóttir stóð uppi sem sigurvegari í stigakeppninni á Eimskipsmótaröðinni og er hún því stigameistari í kvennaflokki 2016. Þetta er í fyrsta sinn sem Ragnhildur nær þessum árangri.
Grafarholtsvöllur, par 71:
1. Axel Bóasson, GK (68-66-70) 204 högg -9
2. Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (68-69-69) 206 högg -7
3. Haraldur Franklín Magnús, GR (70-71-66) 207 högg -6
4. Þórður Rafn Gissurarson, GR (68-69-70) 207 högg -6
5. Bernhard Reiter, Austurríki (71-66-70) 207 högg -6
6. Gísli Sveinbergsson, GK (73-70-68) 211 högg- -2
7. Kristján Þór Einarsson, GM (72-67 -73) 212 högg -1
8. Guðmundur Ágúst Kristjánsson, GR (71-67-74) 212 högg -1
9. Henning Darri Þórðarson, GK (73-7-70) 213 högg
10. Arnór Snær Guðmundsson, GHD (72-67-74) 213 högg

Verðalaunahafar á Securitasmótinu. Guðmundur Arason forstjóri Securitas, Birgir Leifur Hafþórsson, Axel Bóasson, Bernhard Reiter, Þórður Rafn Gissurarson, Haraldur Franklín Magnús og Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. Mynd/seth@golf.is
Verðalaunahafar á Securitasmótinu. Guðmundur Arason forstjóri Securitas, Birgir Leifur Hafþórsson, Axel Bóasson, Bernhard Reiter, Þórður Rafn Gissurarson, Haraldur Franklín Magnús og Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. Mynd/seth@golf.is

1. Saga Traustadóttir GR (74 -75-72) 221 högg +8
2.-3. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR (73-77-72) 222 högg +9
2.-3. Nína Björk Geirsdóttir, GM (75-74-73) 222 högg +9
4. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (76-74-74) 224 högg +11
5. Karen Guðnadóttir, GS (76-76-75) 227 högg +14
6. Heiða Guðnadóttir, GM (76 -76-76) 228 högg +15
7. Gunnhildur Kristjánsdóttir, GK (77- 74-78) 229 högg +16
8. Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK (79-78-73) 230 högg +17

Verðlaunahafar í kvennaflokki á Securitasmótinu. Guðmundur Arason forstjóri Securitas, Nína Björk Geirsdóttir, Saga Traustadóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. Mynd/seth@golf.is
Verðlaunahafar í kvennaflokki á Securitasmótinu. Guðmundur Arason forstjóri Securitas, Nína Björk Geirsdóttir, Saga Traustadóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ. Mynd/seth@golf.is
Axel Bóasson og Ragnhildur Kristinsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Axel Bóasson og Ragnhildur Kristinsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Bernhard Reiter, Birgir Leifur Hafþórsson og Axel Bóasson. Mynd/seth@golf.is
Bernhard Reiter, Birgir Leifur Hafþórsson og Axel Bóasson. Mynd/seth@golf.is

 

Saga Traustadóttir. Mynd: seth@golf.is
Saga Traustadóttir. Mynd: seth@golf.is

Smelltu hér til að fylgjast með skori keppenda á Securitasmótinu. 

Staðan á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar eftir endurröðun fyrir Securitasmótið:

Fjórir kylfingar efstir og jafnir í karlaflokki á Securitasmótinu

Ragnhildur með eitt högg í forskot á Securitasmótinu

Magnús sló draumahöggið af 300 metra færi


 

 

Keppendalistinn á Securitasmótinu er gríðarlega sterkur og í fyrsta sinn í sögunni leika erlendir atvinnukylfingar á Eimskipsmótaröðinni. Atvinnukylfingarnir eru frá Íslandi, Englandi, Írlandi og Austurríki.

Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Axel Bóasson (GK) og Þórður Rafn Gissurarson (GR). Bjarki Pétursson úr GB er einnig á meðal keppenda en þessir fjórir kylfingar skipuðu sér í efstu sætin á Íslandsmótinu í golfi sem fram fór í júlí á Jaðarsvelli á Akureyri.

Þar að auki eru fjórir erlendir keppendur í karlaflokknum. Allt atvinnukylfingar sem leika á atvinnumótaröðum í Evrópu. Þeir eru Liam Robinson frá Englandi, Richard O’Donovan frá Írlandi, Moritz Mayerhauser og Bernhard Reiter, sem eru báðir frá Austurríki. Þeir þrír síðastnefndu leika allir á ProGolf atvinnumótaröðinni sem er í þriðja styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.

Atvinnukylfingar sem taka þátt geta unnið sér inn 250.000 kr. í verðlaunfé með sigri en Axel Bóasson er t.d. í sérstakri stöðu. Keilismaðurinn getur nælt sér í 750.000 kr. verðlaunfé á Securitasmótinu. Ef Axel verður sigurvegari á Securitasmótinu landar hann jafnframt stigameistaratitlinum en hann varð stigameistari í fyrra á Eimskipsmótaröðinni í fyrsta sinn á ferlinum.

Atvinnukylfingar sem verða stigameistarará Eimskipsmótaröðinni fá 500.000 kr. verðlaunafé og gildir það bæði í karla – og kvennaflokki. Atvinnukylfingar sem sigra á Securitasmótinu fá 250.000 kr. í verðlaunafé.

Heildaverðlaunaféð á Securitasmótinu er hátt í tvær milljónir kr. og er mótið eitt það sterkasta frá upphafi á Íslandi.

Landsliðskylfingarnir Andri Þór Björnsson (GR), Haraldur Franklín Magnús (GR) og Guðmundur Ágúst Kristjánsson (GR) eru allir á meðal keppenda en þeir skipa landslið Íslands sem fer á HM í september í Mexíkó. Berglind Björnsdóttir landsliðskona úr GR er einnig á meðal keppenda en hún er í HM liði kvenna sem fer til Mexíkó í september. Berglind er Íslandmeistari í holukeppni 2016.

Það eru fjölmargir Íslandsmeistarar á meðal keppanda í karla og kvennaflokki.
Kristján Þór Einarsson, GM (2008), Birgir Leifur Hafþórsson, GKG (1996, 2003, 2004, 2010, 2013, 2014, 2016), Ólafur Björn Loftsson, GKG (2009), Haraldur Franklín Magnús, GR (2012), Axel Bóasson, GK (2011), Þórður Rafn Gissurarson, GR (2015), Ragnhildur Sigurðardóttir, GR (1985, 1998, 2003, 2005), Nína Björk Geirsdóttir, GM (2007).

Keppni hefst á föstudaginn kl. 9.00 á Grafarholtsvelli og eru keppendur alls 57.

Í mótinu ráðast úrslit um sigur á stigalista Eimskipsmótaraðarinnar. Stigalistanum verður endurraðað í samræmi við reglugerð um stigamót og viðauka II við reglugerðina. Þeir þátttakendur í mótinu er hafa hlotið stig í Eimskipsmótaröðinni á leiktímabilinu raðast á listann í samræmi við áunnin stig. (Keppendur sem ekki hafa stig á stigalista fá hvorki stig í mótinu né hafa áhrif á röðun keppenda varðandi ávinnslu stiga í mótinu.) Hér má sjá endurröðun stiga fyrir mótið. Stigameistarar hvors flokks fyrir sig fá kr. 100.000 í verðlaun í formi gjafakorts. Sé sigurvegari atvinnukylfingur verður upphæðin kr. 500.000. Viðkomandi þarf að hafa gerst atvinnukylfingur fyrir fyrsta mót mótaraðarinnar vorið 2016.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ