/

Deildu:

Bergsveinn Þórarinsson alþjóðadómari.
Auglýsing

Stjórn GSÍ samþykkti á dögunum tillögu dómaranefndar að Bergsveinn Þórarinsson fengi alþjóðleg réttindi. Frá þessu er greint á vef GKG.

Dómarar með alþjóðleg réttindi (R&A referee eða alþjóðadómarar) eru allir þeir landsdómarar sem lokið hafa dómaraprófi frá R&A í samræmi við kröfur þeirra. Dómaranefnd skal gera tillögu til stjórnar GSÍ um þá landsdómara sem teljast hafa nægjanlega kunnáttu og reynslu til að þreyta próf á vegum R&A og ákveður stjórn GSÍ hvort þá skuli senda utan til þess að þreyta prófið.

Alþjóðadómari hefur réttindi til að dæma í öllum innlendum mótum á vegum golfklúbba og GSÍ auk alþjóðlegra móta sem kunna að vera haldin hér á landi.

Bergsveinn er þriðji alþjóðlegi dómarinn úr röðum GKG en Kjartan Bjarnason og Sæmundur Melstað voru áður búnir að ná þessum áfanga. Alls eru ellefu alþjóðlegir dómarar á Íslandi en þeir eru; Aðalsteinn Örnólfsson, Bergsveinn Þórarinsson, Hinrik Gunnarsson, Hörður Geirsson, Jón Thorarensen, Kjartan Bjarnason, Kristján Einarsson, Sæmundur Melstað, Sigurður Geirsson, Þórður Ingason og Þorsteinn Sv. Stefánsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ