Birgir Leifur Hafþórsson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Birgir Leifur Hafþórsson lék vel á lokahringnum á KPMG mótinu á Áskorendamótaröðinni í Belgíu í dag. Sjöfaldi Íslandsmeistarinn var 14.-16. sæti á -10 samtals fyrir lokahringinn en hann bætti töðu sína og endaði jafn í 4. sæti á -16 samtals (69-68-69-66).

Lokastaðan:

Birgir lék lokahringinn á 66 höggum eða -6 þar sem hann fékk alls sjö fugla. Fyrir árangurinn fékk hann tæplega 800.000 kr. í verðlaunafé. Sigurvegarinn Martin Wiegele frá Austurríki var þremur höggum betri en Birgir Leifur og fékk hann rúmlega 3 milljónir kr. í verðlaunafé.

Á öðrum keppnisdeginum náði Birgir ótrúlegri skorp þar sem hann fékk þrjá fugla í röð á 10., 11., 12. og hann endaði þessa hrinu með því að fara í holu í höggi á 14.

Mótið fer fram á Royal Waterloo Golf Club og er þetta í fimmta sinn sem mótið fer fram á þessum velli.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ