Birgir Leifur Hafþórsson.
Auglýsing

Það er gríðarlega sterkur keppendahópur sem mætir til leiks á Securitasmótið á Eimskipsmótaröðinni. Mótið hefst á föstudaginn á Grafarholtsvelli þar sem keppt verður um GR-bikarinn. Aðeins 57 keppendur eru með þátttökurétt á þessu móti. Meðalforgjöfin í karlaflokki er +0.4 og í kvennaflokki er meðalforgjöfin 2.9.

Alls eru 24 kylfingar með forgjöf 0 eða lægra en alls eru 39 keppendur í karlaflokknum. Sjöfaldur Íslandsmeistari í golfi, Birgir Leifur Hafþórsson úr GKG, er með lægstu forgjöfina eða -4.5. Þar á eftir koma Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr GR og Haraldur Franklín einnig úr GR en hægt er að sjá forgjöf kylfinga í töflunni hér fyrir neðan.

Karlar:
Screen Shot 2016-08-16 at 5.00.04 PMScreen Shot 2016-08-16 at 5.00.20 PMScreen Shot 2016-08-16 at 5.00.35 PM
Konur:
Screen Shot 2016-08-16 at 5.04.09 PM

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ