Auglýsing

Björn Óskar Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar sigraði í Unglingaeinvígi Samsung sem fram fór á Hlíðavelli í Mosfellsbæ um helgina. Þetta er í fyrsta sinn sem Björn Óskar stendur uppi sem sigurvegari í þessu skemmtilega móti þar sem flestir af bestu yngri kylfingum landsins fá þátttökurétt.

Keppnisfyrirkomulagið er með þeim hætti að 10 kylfingar leika til úrslita og fellur einn keppandi út á hverri holu þar til einn stendur uppi sem sigurvegari. Eyjamaðurinn Kristófer Tjörvi Einarsson varð annar og Akureyringurinn Kristán Benedikt Sveinsson varð þriðji.

1. Björn Óskar Guðjónsson GM
2. Kristófer Tjörvi Einarsson GV
3. Kristján Benedikt Sveinsson GA
4. Arna Rún Kristjánsdóttir GM
5. Ragnar Már Ríkarðsson GM
6. Sverrir Haraldsson GM
7. Kristófer Karl Karlsson GM
8. Ingvar Andri Magnússon GR
9. Andri Már Guðmundsson GM
10. Hafdís Alda Jóhannsdóttir

Sigurvegarar Samstung – Unglingaeinvígins frá upphafi.

2005 – Sveinn Ísleifsson
2006 – Guðni Fannar Carrico
2007 – Andri Þór Björnsson
2008 – Guðjón Ingi Kristjánsson
2009 – Andri Már Óskarsson
2010 – Guðrún Brá Björgvinsdóttir
2011 – Ragnar Már Garðarson
2012 – Aron Snær Júlíusson
2013 – Ingvar Andri Magnússon
2014 – Ingvar Andri Magnússon
2015 – Björn Óskar Guðjónsson

Mótið tókst vel í alla staði þrátt fyrir nokkuð erfiðar aðstæður en töluverður vindur var á meðan keppnin fór fram og það rigndi af og til. Styrktaraðilar mótsins eru Samsung, Securitas og Íslandsbanki – og vilja mótshaldarar koma á framfæri þakklæti fyrir stuðninginn.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ