Loftur Þór Pétursson (GHR) og Hulda Alfreðsdóttir (GKG). Mynd/GKG
Auglýsing

Um s.l. helgi fór fram golfmót á Leirdalsvelli sem var til styrktar íþrótta- og afrekssviði GKG. Mótið er einnig haldið til þess að heiðra Jón Ólafsson og Ólaf E. Ólafsson sem báðir létust óvænt og skyndilega í blóma lífsins. Þeir áttu drjúgan þátt í að gera GKG að því sem klúbburinn er í dag.

Þema mótsins var leikhraði. VITAgolf styrkti mótið með þeim hætti að ef allir keppendur lykju leik á undir 4 klukkustundum og 30 mínútum þá yrðu dregnar út tvær vikugolfferðir til Spánar eða Portúgals. Það ríkti frábær stemning allan daginn og voru allir ráshópar meðvitaðir um leikhraðann og stefndu allir á að ná markmiðinu. Flestir ráshópar komu inn á 4:15 – 4:20 klst. og var hægasti ráshópurinn á tímanum 4:25 klst.

Markmiðið náðist því og voru kylfingar afar ánægðir með árangur dagsins.

Loftur Þór Pétursson GHR og Þórveig Hulda Alfreðsdóttir GKG voru svo dregin út, þau voru bæði á staðnum og fögnuðu vel og innilega.

GKG vill nýta tækifærið og þakka VITAgolf og öllum þeim styrktaraðilum sem styrktu mótið með frábærum vinningum.

VITAgolf útdráttarverðlaun:
Loftur Þór Pétursson, GHR
Þórveig Hulda Alfreðsdóttir, GKG

Næstur holu:
2. braut Kolbeinn Halldórsson GR 3,91m
4. braut Bergur Konráðsson GKG 38,5cm
9. braut Steindór Dan Jensen GR 172cm
11. braut Sindri Snær Skarphéðinsson GKG 196cm
13. braut Chapane Ramdani GKG 278cm
17. braut Hanna Ólafsdóttir GM 73,5cm

Punktakeppni:
1. Haukur Bragason GM 41 punktur
2. Elís Rúnar Víglundsson GM 40 punktar
3. Örn Sveinbjörnsson GKG 40 punktar

Höggleikur án forgjafar:
1. Bergur Konráðsson GKG 74 högg

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ