/

Deildu:

Frá Íslandsmóti eldri kylfinga á Garðavelli 2016. LEK.
Auglýsing

Í kjölfar þeirrar umræðu sem hefur átt sér stað innan stjórnar og vegna þeirrar niðurstöðu sem varð í kosningu í stjórn ESGA í Noregi nú í sumar og varðar aldursmörk í mótum á vegum ESGA hefur stjórn LEK samþykkt að gera eftirfarandi breytingar:

Öldungamótaröð LEK verður haldin með óbreyttu sniði, en þó þannig að þeir kylfingar sem náð hafa 50 ára aldri fyrir 1.keppnisdag ár hvert hafa þátttökurétt, þrátt fyrir samþykkt ESGA. Þannig geta kylfingar sem ekki hafa náð 55 ára aldri orðið meistarar á Öldungamótaröð LEK, en hafa þó ekki þátttökurétt á mótum á vegum ESGA.

Stjórn LEK telur þessa breytingu til framdráttar starfsemi og mótahaldi LEK, enda skynsamlegt að halda sömu aldursmörk og samþykkt hafa verið hjá GSÍ.

Í ljósi þessara breytinga verður framvegis keppt til landsliða í eftirfarandi flokkum:
Landslið KK 50 ára og eldri, án forgjafar.

Gjaldgengir væru allir þeir aðilar sem hafa náð fyrrgreindum aldursmörkum og hafa að hámarki 9 í forgjöf.

Þeir aðilar sem ná 6 efstu sætum í keppni sumarsins, þ.e. Öldungamótaröðinni, skipa þannig karlalandslið Íslands 50 ára og eldri, án forgjafar og tækju þátt fyrir Íslands hönd í árlegu móti áhugamanna, sem haldin er á vegum EGA. Á næsta ári fer þetta mót fram í Svíþjóð í lok ágúst.

Breyting þessi tekur strax gildi og LEK sendir landslið í þessum aldursflokk næsta sumar i skv. stigalista og árangri á mótaröðinni á árinu 2016. Með þessu er LEK að koma til móts við þá aðila sem ekki hafa náð 55 ára aldri, en tóku þó þátt í mótaröðinni í sumar, í kjölfar þeirra breytinga sem LEK ákvað og kunnar eru.

Landslið KK 55 ára og eldri, með forgjöf.

Gjaldgengir væru allir þeir aðilar sem hafa náð fyrrgreindum aldursmörkum og ekki er gerð nein krafa um forgjafamörk. Hafa ber þó í huga að hámarksforgjöf á mótum ESGA er 16,0.
Þeir aðilar sem ná 6 efstu sætum í keppni sumarsins, þ.e. Öldungamótaröðinni, skipa þannig karlalandslið Íslands 55 og eldri, með forgjöf og tækju þátt fyrir Íslands hönd í árlegu móti áhugamanna sem haldin er á vegum ESGA eins og verið hefur. Á næsta ári fer þetta mót fram í Póllandi.

Að öðru leyti eru landslið LEK, þ.e. Landslið KK 70 ára og eldri og Landslið KVK 50 ára og eldri, óbreytt og valin með sama hætti og verið hefur.

Reykjavík, 01.09.2016
Stjórn LEK

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ