Símamótið 2016
Andri Þór Björnsson, GR.
Auglýsing

Íslensku kylfingarnir fjórir sem komust í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina hafa allir lokið keppni á 2. stig úrtökumótsins. Þeir kepptu á fjórum mismunandi keppnisvöllum á Spáni. Keppni á 2. stigi úrtökumótsins fór fram dagana 4.-7.  nóvember. Andri Þór Björnsson, Þórður Rafn Gissurarson, Haraldur Franklín Magnús og Guðmundur Ágúst Kristjánsson náðu ekki að komast í gegnum 2. stigið og hafa því lokið keppni á þessu tímabili á úrtökumótinu fyrir sterkustu atvinnumótaröð Evrópu.

Andri Þór Björnsson lék samtals á +5  (68-73-74-73) og endaði Andri Þór í 39.-43. sæti. Þetta er í fyrsta sinn sem Andri Þór leikur á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðinni.

Lokastaðan hjá Andra:

Andri Þór keppti á Las Colinas vellinum í Alicante. Andri Þór hefur nú þegar tryggt sér keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni.

screen-shot-2016-11-07-at-1-50-25-pm

Þórður Rafn Gissurarson lék á +6 samtals (77-75-72-70) og endaði hann í 57.-60. sæti.

Staðan hjá Þórði:

Þórður Rafn keppti á Campo de Golf El Saler vellinum við Valencia en þetta er í annað sinn sem Þórður Rafn kemst inn á 2. stig úrtökumótsins. Þetta er í sjöunda sinn sem Þórður keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Þórður keppti í fyrsta sinn árið 2009 en hann komst í gegnum 1. stigið árið 2014 en féll úr keppni á 2. stiginu.

screen-shot-2016-11-07-at-2-24-18-pm

Haraldur Franklín Magnús endaði í 51.-53. sæti á (76-70-71-74). Hann le´k samtals á +3. 

Staðan hjá Haraldi:

screen-shot-2016-11-07-at-1-50-00-pm

 

Haraldur Franklín keppti á Lumine Golf & Beach Club við Tarragona rétt við Barcelona. Þetta er í fyrsta sinn sem Haraldur reynir við úrtökumót Evrópumótaraðarinnar. Haraldur Franklín hefur nú þegar tryggt sér takmarkaðann keppnisrétt á Nordic League atvinnumótaröðinni.

Guðmundur Ágúst Kristánsson lék samtals á (73-71-68-76) og endaði hann í 59.-62 . sæti.

Staðan hjá Guðmundi:

Guðmundur Ágúst keppti á Panoramica Golf & Sport Resort sem er ekki langt frá Tarragona svæðinu á Spáni. Þetta er í fyrsta sinn sem Guðmundur Ágúst keppir á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Guðmundur Ágúst reyndi einnig við úrtökumótið fyrir Nordic League atvinnumótaröðina en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

screen-shot-2016-11-07-at-1-50-11-pm

Axel Bóasson (GK), Birgir Leifur Hafþórsson (GKG), Pétur Freyr Pétursson (GKj.), og Ólafur Björn Loftsson (GKG) reyndu sig allir á úrtökmótinu fyrir Evrópumótaröðina 2016 og féllu þeir allir úr keppni á 1. stiginu.

Aldrei áður hafa jafnmargir keppendur frá Íslandi keppt í karlaflokki á úrtökumótinu fyrir Evrópumótaröðina. Og þar að auki hafa aldrei jafnmargir karlar komist inn á 2. stig úrtökumótsins.

Haraldur Franklín Magnús sigraði á Nýherjamótinu í fyrra. Mynd/seth@golf.is
Haraldur Franklín Magnús. Mynd/seth@golf.is
Guðmundur Ágúst Kristjánsson.
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/seth@golf.is
Þórður Rafn Gissurarson.
Þórður Rafn Gissurarson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ