Guðmundur Ágúst
Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson náði frábærum árangri á úrtökumóti fyrir Nordea Masters. GR-ingurinn varð í öðru sæti með því að leika á 5 höggum undir pari á Barsebäck golfvellinum rétt utan við Malmö í Svíþjóð. Alls tóku fjórir íslenskir atvinnukylfingar þátt á þessu úrtökumóti.

Lokastaðan:

Með árangri sínum náði atvinnukylfingurinn úr GR að tryggja sér keppnisrétt á sjálfu Nordea Masters sem er hluti af sterkustu mótaröð Evrópu. Mótið fer fram 1.-4. júní á Barsebäck og þar mæta til leiks margir af bestu kylfingum heims. Enska ungstirnið Matthew Fitzpatrick hefur titil að verja á mótinu.

Alls reyndu 124 kylfingar sig á úrtökumótinu en alls komust þrír áfram. Adrien Bernadet og Niklas Lemke öðluðust keppnisrétt líkt og Guðmundur Ágúst. Þar mæta til leiks kylfingar á borð við heimamennina Henrik Stenson og Alexander Noren.

Andri Þór Björnsson (GR), Axel Bóasson (GK) og Haraldur Franklín Magnús (GR) komust ekki áfram.  Andri lék á einu höggi undir pari, Axel á +2 og Haraldur á +4.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ