Auglýsing

Ný og glæsileg íþróttamiðstöð Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar var opnuð með formlegum hætti í dag. Mikið fjölmenni mætti til þess að skoða nýja mannvirkið sem er á tveimur hæðum og mátti heyra á gestum að viðmið hefðu nú verið sett í aðstöðu fyrir golfklúbba landsins.

Framkvæmdir við nýju íþróttamiðstöðina hófust fyrir rétt rúmlega ári síðan. Íþróttamiðstöðin, sem er 1400 fermetrar var reist á þeim stað þar sem gamla félagsaðstaða GKG var til staðar. Það húsnæði var fyrir löngu sprungið en þar var um að ræða gamlan söluskála sem var áður á Selfossi en var keyptur af GKG vorið 1990.

Um 1300 félagsmenn eru í GKG og fram kom í máli bæjarstjóra Kópavogs og Garðabæjar að öflugt barna – unglingastarf GKG væri hryggjarstykki í starfi félagsins.

Á efri hæðinni er glæsilegur veitingasalur, skrifstofur starfsmanna, verslun og móttaka. Á neðri hæðinni er fullkomin æfinga – og kennsluaðstaða og er þar að finna m.a. búningsaðstöðu, Trackman svæði þar sem fjögur slík tæki eru til staðar, stóra púttflöt og aðstöðu fyrir aðrar æfingar sem tengjast golfíþróttinni.

Það var byggingarverktakinn GG Verk sem sá um framkvæmdirnar og stóðust allar áætlanir sem settar voru upp, hvað varðar tíma og fjármagn. Kostnaðaráætlun við heildarverkið er 660 milljónir og greiðir Kópavogur, Garðabær og GKG sinn hvorn sinn þriðjunginn.

Fjölmargir tóku til máls í dag þegar íþróttamiðstöðin var tekin í notkun.

Guðmundur Oddsson fyrrum formaður GKG fór nokkuð ítarlega yfir söguna á bak við nýju íþróttamiðstöðina. Finnur Sveinbjörnsson, formaður klúbbsins, tók einnig til máls og fagnaði með eftirminnilegum hætti þessum tímamótum. Illugi Gunnarsson, Mennta – og menningarmálaráðherra, flutti ávarp og vígði með glæsibrag píanó sem félagsmenn söfnuðu fyrir og verður til staðar í íþróttamiðstöðinni. Verkið sem Illugi flutti var frumsamið og svo var að heyra að hann hefði ekki slegið feilnótu.

Ármann Kristinn Ólafsson, bæjarstjóri Kópavogs og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar, fluttu skemmtileg ávörp þar sem þeir rifjuðu upp golfsögur og reynslu sína af golfíþróttinni.

Hreimur Örn Heimisson, félagsmaður í GKG, og tónlistamaður, braut upp dagskrána með tónlistarflutningi og var vel tekið undir þegar hann söng Að ferðalokum og Lífið er yndislegt.

Lárus Blöndal, forseti Íþrótta – og ólympíusambands Íslands, færði GKG gjafir frá ÍSÍ. Hann afhenti einnig GKG viðurkenningu sem fyrirmyndarfélag ÍSÍ til næstu fjögurra ára en Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ var einnig viðstödd athöfnina.

Brynjar Eldon Geirsson, framkvæmdastjóri Golfsambands Íslands, færði GKG gjafir og flutti góðar kveðjur frá GSÍ.

Ungir kylfingar úr röðum GKG klipptu á borða með formlegum hætti undir lok athafnarinnar og fengu þar með tækifæri til þess að prófa nýju æfingaaðstöðuna fyrstir allra. Eins og áður segir var mikið fjölmenni viðstatt í dag þegar íþróttamiðstöðina var opnuð og eru spennandi tímar framundan hjá GKG sem stofnaður var árið 1994.

Golfsamband Íslands sendir félagsmönnum, starfsfólki GKG og íbúum Kópavogs og Garðabæjar bestu hamingjuóskir með nýja mannvirkið.

IMG_7850
Agnar Jónsson framkvæmdastjóri GKG og Guðmundur Oddsson fyrrum formaður GKG tóku á móti gestum.
IMG_7863
Egill Ragnar Gunnarsson og Ólafur Björn Loftsson afrekskylfingar úr GKG.
IMG_7913
Líney Rut Halldórsdóttir framkvæmdastjóri ÍSÍ og Eggert Ágúst Sverrisson varaforseti GSÍ.
IMG_7925
Finnur Sveinbjörnsson formaður GKG.
IMG_7924
Guðmundur Oddsson fyrrum formaður GKG.
IMG_7918
Finnur Sveinbjörnsson formaður GKG.
IMG_7931
Illugi Gunnarsson, Gunnar Einarsson og Ármann Kristinn Ólafsson.
IMG_7939
Kristófer Orri Þórðarson og Hlynur Bergsson afrekskylfingar úr GKG.
IMG_8000
Illugi Gunnarsson vígir píanóið með frumsömdu verki.
IMG_7983
Agnar Jónsson framkvæmdastjóri GKG.

IMG_7846 IMG_7844 IMG_7870 IMG_7852 IMG_7883 IMG_7881 IMG_7898 IMG_7894 IMG_7888 IMG_7912 IMG_7909 IMG_7917 IMG_7915 IMG_7928 IMG_7940 IMG_7938 IMG_7963 IMG_7944 IMG_7969 IMG_7966 IMG_7994 IMG_8013 IMG_8011 IMG_8008 IMG_8025 IMG_8014 IMG_8057 IMG_8050 IMG_8037 IMG_8068 IMG_8063 IMG_8080 IMG_8075 IMG_8093 IMG_8084 IMG_8083 IMG_8095 IMG_8094 IMG_8102 IMG_8101 IMG_8096 IMG_8111 IMG_8104 IMG_8116 IMG_8113 IMG_8120 IMG_8117 IMG_8126 IMG_8124 IMG_8132 IMG_8128 IMG_8142 IMG_8140 IMG_8134 IMG_8152 IMG_8146 IMG_8154

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ