/

Deildu:

Hlynur Geir Hjartarson
Auglýsing

Selfyssingurinn Hlynur Geir Hjartarson er nýr formaður PGA á Íslandi. Hann tekur við formennsku í samtökunum af Sigurpáli Geir Sveinssyni sem hefur gengt embættinu frá árinu 2009. Frá þessu er greint á heimasíðu PGA á Íslandi.

Hlynur Geir kveðst taka við góðu búi af forvera sínum: „Samtökin hafa eflst jafnt og þétt í formannstíð Sigurpáls og standa vel. Það leiðir af sér að núna er tækifæri til sóknar. Þau atriði sem ég hef áhuga á að einbeita mér að er annars vegar að efla félagið innan í frá, að fá samtakamátt meðal félagsmanna sem nú eru um 70. Út á við hef ég metnað fyrir því að ná þéttu samstarfi við golfklúbbana á Íslandi varðandi útbreiðslu á íþróttinni,“ segir Hlynur.

„Það er gríðarlega mikilvægt að snúa við þeirri þróun sem við sáum á síðasta ári þegar fækkun var á þátttakendum innan golfhreyfingarinnar. Í þeim þætti er mér það mest hugleikið að efla barna og unglingastarfið ásamt því að efla kennslu á landsbyggðinni. Lykilatriðið er að ná forgjöf golfara niður fyrir 24. Allar rannsóknir sem gerðar hafa verið styðja það að þeim punkti virðist sem kylfingar hafi náð þeim tökum á íþróttinni að litlar sem engar líkur eru á að þeir hætti í golfi. Það er frábær hópur sem myndar stjórn PGA og hlakkar mig mikið til að takast á við það að efla golfíþróttina á íslandi með þeim einstaklingum, öðrum félagsmönnum PGA, golfklúbbunum á  íslandi og síðast en ekki síst GSÍ sem við höfum átt gott samstarf við í gegnum árin.

Hlynur Geir byrjaði í golfi árið 1996 eftir farsælan feril í knattspyrnu þar sem hann var meðal annars íslandsmeistari með KR í 3. og 2. flokki. Undir handleiðslu Magnúsar Birgissonar náði hann fljótt tökum á golfíþróttinni og vann sinn fyrsta sigur á eftstu mótaröðinni árið 2005. Hlynur varð stigameistari Íslands 2008, Íslandsmeistari í holukeppni 2008, Íslandsmeistari í sveitakeppninni 2008 og stigameistari árin 2010 og 2012. Hlynur er í dag framkvæmdastjóri Golfklúbbs Selfoss ásamt því að sinna formennsku hjá PGA samtökunum.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ