Auglýsing

Grein úr 5. tbl. Golf á Íslandi 2016:

Hvaleyrarvöllur hjá Golfklúbbnum Keili fær frábæra dóma í sænsku útgáfunni af bandaríska golftímaritinu Golf Digest. Í nóvember kom út 7. tbl. ársins 2016 og þar var birtur listi yfir 100 bestu golfvellina á Norðurlöndunum. Alls eru fimm íslenskir golfvellir á þessum lista. Nokkrir íslenskir golfsérfræðingar tóku þátt í að búa til listann. Blaðamaður og ljósmyndari frá Golf Digest í Svíþjóð komu hingað til Íslands til að taka út vellina.

„Ég var orðlaus þegar ég leit yfir völlinn á fyrsta teig – ég var samt efins um að þetta væri raunveruleikinn. Ég beið eftir grínholunni en hún kom bara aldrei – þetta er toppvöllur,“ segir í umsögn Golf Digest um Hvaleyrarvöllinn.

Þeir sem komu að því að setja saman listann eru golfvallahönnuðir, PGA kylfingar, PGA kennarar, blaðamenn, fagfólk úr golfiðnaðinum og einstaklingar með mikla þekkingu á golfíþróttinni á Norðurlöndunum.

[pull_quote_right]Ég var orðlaus þegar ég leit yfir völlinn á fyrsta teig – ég var samt efins um að þetta væri raunveruleikinn. Ég beið eftir grínholunni en hún kom bara aldrei – þetta er toppvöllur,“ segir í umsögn Golf Digest um Hvaleyrarvöllinn.[/pull_quote_right]

Hvaleyrarvöllur er í 15. sæti yfir bestu golfvellina á Norðurlöndunum samkvæmt þessari úttekt og tveir íslenskir vellir eru á topp 40 listanum. Aðrir íslenskir vellir sem komast á listann eru Vestmannaeyjavöllur (34.), Brautarholtsvöllur (40.), Korpan (60.) og Grafarholtsvöllur (93.)

„Það er frábært að fá svona umsögn og styrkir okkur í því að gera enn betur í framtíðinni. Á næstu árum verða gerðar umtalsverðar breytingar á Hvaleyrarvelli og við eigum því enn mikið inni. Svona umsögn er hvetjandi fyrir okkur í Keili og ekki síst Hafnarfjarðarbæ að eiga golfvöll sem vekur athygli hjá erlendum kylfingum,“ segir Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri Keilis við Golf á Íslandi.

img_3876

100 bestu golfvellirnir á Norðurlöndunum:

 

  1. Bro Hof Slott GC, The Stadium Course, Svíþjóð.
  2. Falsterbro GK, Svíþjóð.
  3. The Scandinavian GC, Old Course, Danmörk.
  4. Kytäjä Golf, South East Course, Finnland.
  5. Visby GK, Svíþjóð.
  6. Miklagard Golf, Noregur.
  7. Ullna GC, Svíþjóð.
  8. Holtsmark Golf, Noregur.
  9. Esbjerg GK, Danmörk.
  10. Barsebäck G&CC, Masters Course, Svíþjóð.
  11. Halmstad GK, Norra banan, Svíþjóð.
  12. Lübker Resort, Sand/Sky Course, Danmörk.
  13. Vasatorps GK, Tournament Course, Svíþjóð.
  14. Linna Golf, Finnland.
  15. Keilir, Ísland.
  16. Oslo GK, Noregur.
  17. Vallda G&CC, Svíþjóð.
  18. Silkeborg Ry GC, Syd & Vest, Danmörk.
  19. PGA of Sweden National, Links, Svíþjóð.
  20. Sand GC, Svíþjóð.
  21. Kÿtaja Golf, Finnland.
  22. PGA Sweden National, Lakes, Svíþjóð.
  23. Bro Hof Slott GC, Castle Course, Svíþjóð.
  24. Kongsvingers GK, Noregur.
  25. Bjaavann GK, Noregur.
  26. Scandinavian GC, New Course, Danmörk.
  27. Ljunghusens GK, Svíþjóð.
  28. Vierumäki Cooke Course, Finnland.
  29. Holsterbro GK, Skovbanen, Danmörk.
  30. Lofoten Links, Noregur.
  31. Kristiansads GK, Östra, Svíþjóð.
  32. Frösåker G&CC, Stora, Svíþjóð.
  33. Kungl. Drottningholms GK, Svíþjóð.
  34. Vestmannaeyjar, Ísland.
  35. Simon’s GC, A&B, Danmörk.
  36. Skjoldenæsholm GC, Trent Jones Jr Course, Danmörk.
  37. Vidbynäs GC, South Course, Svíþjóð.
  38. Hills Golf & Sports Club, Svíþjóð.
  39. Elisefarm GC, Svíþjóð.
  40. Brautarholt, Ísland.
  41. Grönhögen Golf Links, Svíþjóð.
  42. Torekovs GK, Svíþjóð.
  43. Meland GK, Noregur.
  44. Stensballegaard Golf, Brakør & Elbæk, Danmörk.
  45. Rya GK, Svíþjóð.
  46. Stavanger GK, Noregur.
  47. Rungsted GK, Danmörk.
  48. Ombergs Golf, Svíþjóð.
  49. Atlungstad Golf, Noregur.
  50. Sölvesborgs GK, Svíþjóð.
  51. Vasatorps GK, Svíþjóð.
  52. Tapiola Golf, Finnland.
  53. Aalborg GK, Danmörk.
  54. Flommens GK, Svíþjóð.
  55. Lannalodge Golfresort, Svíþjóð.
  56. Sola GK, Noregur.
  57. Landeryds GK, Svíþjóð.
  58. Lyngbygaard GK, Danmörk.
  59. Halmstad GK, Södra banan, Svíþjóð.
  60. Golfklúbbur Reykjavíkur, Korpan, Ísland.
  61. Båstad GK, Gamla banan, Svíþjóð.
  62. Bokskogens GK, Svíþjóð.
  63. Royal GC, Danmörk.
  64. S:t Arild GK, Svíþjóð.
  65. Himmerland G&SR, Backtee Course, Danmörk.
  66. Kallfors GK, Svíþjóð.
  67. Vuosaari Golf, Finnland.
  68. Österåkers GK, Svíþjóð.
  69. Vidbynäs, North Course, Svíþjóð.
  70. Landeryds GK, Svíþjóð.
  71. Nøtterøy GK, Noregur.
  72. Kragerø GK, Noregur.
  73. Barsebäck G&CC, Donald Steel, Svíþjóð.
  74. Ledreborg Palace GC, Danmörk.
  75. Kungsbacka GK, Svíþjóð.
  76. Varbergs GK, Västra banan, Svíþjóð.
  77. Österlens GK, Lilla Vik, Svíþjóð.
  78. Svartinge Golf, Svíþjóð.
  79. Nordcenter, Fream Course, Finnland.
  80. Isaberg GK, Östra, Svíþjóð.
  81. Åtvidabergs GK, Svíþjóð.
  82. Forsbacka GK, Svíþjóð.
  83. Katrineholms GK, Gamla banan, Svíþjóð.
  84. Tyrifjord GK, Noregur.
  85. Båstad GK, Nya banan, Svíþjóð.
  86. Malarö GK, Skytteholm, Svíþjóð.
  87. Københavns GK, Danmörk.
  88. Kristianstads GK i Åhus, Svíþjóð.
  89. Kungsängen GC, Svíþjóð.
  90. Arlandastad Golf, Svíþjóð.
  91. Ruuhikosi Golf, Finnland.
  92. Kalmar GK, Gamla banan, Svíþjóð.
  93. Paltamo Golf, Finnland.
  94. Golfklúbbur Reykjavíkur, Grafarholt, Ísland.
  95. Fjällbacka GK, Svíþjóð.
  96. Eksjö GK, Svíþjóð.
  97. Losby GK, Østmork, Noregur.
  98. Säters GK, Svíþjóð.
  99. Gävle GK, Svíþjóð.
  100. Fanø Golf Links, Danmörk.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ