/

Deildu:

Auglýsing

Íþrótta- og Ólympíusambandið mun hefja Íþróttaviku Evrópu formlega með #BeActive deginum 2018 sem haldinn verður í Laugardalnum nk. sunnudag, 23. september kl.10-16.

Frekari upplýsingar má nálgast á Facebook síðu viðburðarins: BeActive dagurinn 2018.

Íþróttavika Evrópu (European Week of Sport) fer fram vikuna 23. – 30. september nk. í yfir 30 Evrópulöndum. Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands hefur hlotið styrk frá Evrópusambandinu í gegnum Erasmus+ styrkjakerfið til verkefna sem munu tengjast vikunni.

Markmiðið með Íþróttaviku Evrópu er að kynna íþróttir og almenna hreyfingu um alla Evrópu og sporna við auknu hreyfingarleysi meðal almennings. Íþróttavikan er ætluð öllum óháð aldri, bakgrunni eða líkamlegu ástandi. Sérstök áhersla er lögð á að höfða til grasrótarinnar og að hvetja Evrópubúa til að sameinast undir slagorðinu #BeActive til þess að hreyfa sig oftar og meira í sínu daglega lífi.

Það verður mikið um að vera í Laugardalnum þennan dag þar sem hægt verður að koma og prófa hinar ýmsu íþróttagreinar og hreyfingu svo sem Aqua zumba, rathlaup, frisbígolf, skylmingar, frjálsar íþróttir, skotfimi og stafgöngu svo fátt eitt sé nefnt. Svo verður Sirkus Íslands á svæðinu ásamt Leikhópnum Lottu og boðið verður upp á AVA drykk og Kraft súkkulaði.

Vefsíða Beactive.is.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ