Berglind Björnsdóttir og Gísli Sveinbergsson hafa titla að verja á Íslandsmótinu í holukeppni. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Gísli Sveinbergsson úr Keili og Berglind Björnsdóttir úr GR fögnuðu sigri á KPMG-bikarnum, Íslandsmótinu í holukeppni á Eimskipsmótaröðinni. Þetta eru fyrstu Íslandsmeistaratitlar þeirra í þessari keppni sem fór fram í fyrsta sinn árið 1988.

IMG_5771
Gísli lagði Aron Snæ Júlíusson úr GKG í úrslitaleiknum 4/3 en góð byrjun Gísla lagði grunninn að sigrinum. Andri Már Óskarsson úr GHR sigraði Theodór Emil Karlsson úr GM í leik um þriðja sætið 5/4.


Berglind sigraði Ragnhildi Kristinsdóttur úr GR í úrslitaleiknum 2/1. Ingunn Einarsdóttir úr GKG sigraði Signý Arnórsdóttur úr GK í leik um þriðja sætið 2/1.

Öll úrslit úr mótinu má nálgast hér:


Gísli Sveinbergsson:

 

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég vinn mót á Eimskipsmótaröðinni og þetta er því góður og mikilvægur áfangi fyrir mig 18 ára gamlan,“ sagði Gísli Sveinbergsson úr Keili eftir að hann hafði fagnað sigri í úrslitaleiknum á KPMG-bikarnum, Íslandsmótinu í holukeppni. Gísli lagði Aron Snæ Júlíusson úr GKG í úrslitaleiknum á Hólmsvelli í Leiru í dag 4/3.

 

IMG_5723
Andri Már Óskarsson, Gísli Sveinbergsson og Aron Snær Júlíusson.

„Ég byrjaði mjög vel og náði góðu forskoti strax eftir sex holur og komst fjórar upp og eftir það var bara mikilvægast að halda áfram og gera ekki mistök. Leiran er frábær og einn af bestu völlum landsins og það var gaman og gott að spila hérna,“ sagði Gísli.

Það verður nóg um að vera hjá Gísla í sumar en hann mun leika með Keili á Íslandsmóti golfklúbba um næstu helgi og síðan tekur við hvert verkefnið af öðru. „Ég tek bara einn dag í einu og pæli ekki mikið í því sem er framundan. Ég var ánægður með pabba sem kaddý hérna í Leirunni. Við ræddum um allt annað en golf á milli högg og hann var góður í því og ég þakka honum fyrir aðstoðina,“ bætti Gísli við.

Berglind Björnsdóttir:

„Ég hef lengi unnið að þessu markmiði og núna tókst það loksins. Ég hef alltaf verið þolinmóð og æft mikið en það hefur ekki alltaf gengið upp. Núna fóru púttin sem ég hef verið að æfa mikið að detta ofaní og það skilað árangri. Það var komin tími á þetta hjá mér. Lokaleikurinn gegn Ragnhildi var mjög skemmtilegur og ég þurfti að gera mitt allra besta til þess að komast svona langt. Ég vona að ég fái að geyma bikarinn heima næsta árið.

Það er markmiðið að gera enn betur og ég hef sett mér það markmið að feta sömu leið og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir vinkona mín úr GR. Ég ætla að reyna við úrtökumótið fyrir Evrópumótaröðina í haust og vonandi fæ ég einhver tækifæri á LET Access mótum í haust en það eru alltaf möguleikar á að fá slík boð. Síðan eru risastór verkefni framundan, Íslandsmót golfklúbba, Íslandsmótið í golfi á Jaðarsvelli og ég hef því nóg fyrir stafni,“ sagði Berglind Björnsdóttir úr GR.

 

Berglind Björnsdóttir og Gísli Sveinbergsson. Mynd/seth@golf.is
Ragnhildur Kristinsdóttir, Berglind Björnsdóttir og Ingunn Einarsdóttir. Mynd/seth@golf.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ