/

Deildu:

Auglýsing

Íslenska landsliðið sem keppir á Evrópumóti eldri kylfinga í Waterloo í Belgíu bætti stöðu sína á öðrum keppnisdeginum. Íslenska liðið bætti sig um þrjá punkta og færðist upp í tólfta sæti. Vonast menn til að ná enn meiri bætingu á morgun. Veður var þokkalegt – væta af og til og sólskin á milli.

Eins og fyrri daginn voru Jóhann Peter Andersen og Guðlaugur R. Jóhannsson á besta skorinu eða 37 punktum,  Helgi  Hólm og Gunnlaugur Ragnarsson voru með 35 punkta, Pétur Elíasson og Kristinn Jóhansson voru á 32 punktum.

Sem fyrr eru það Norðmenn sem spila best og leiða keppnina. Öll úrslit má sjá argsb.be

Keppt er á Chateau de Tournette. Mótið fer fram í tvennu lagi – með og án forgjafar og keppir lið LEK með forgjöf.

Alls eru  keppendur yfir tvö hundruð frá átján þjóðum.

Lið LEK er skipað eftirtöldum keppendum: Jóhann Peter Andersen, Guðlaugur R Jóhannsson, Gunnlaugur Ragnarsson, Helgi Hólm, Kristinn Jóhannsson og Pétur Elíasson.

Fyrirkomulagið er þannig að fyrstu tvo dagana leika tveir saman í punktakeppni og telst betra skor kependa á hverri holu fyrir sig. Síðasta daginn er síðan leiknn einmenningur. Ávallt gildir skor bestu fjögurra í hvern dag keppninni.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ