/

Deildu:

Auglýsing

Áhugamennskunefnd G.S.Í. hefur ákveðið að hámarksverðmæti verðlauna í golfmótum skuli árið 2017 vera kr. 70.000 .

Verðmæti ferðavinninga má þó vera allt að kr. 140.000.

Eins og endranær er miðað er við smásöluverðmæti vinnings.
Eftirtaldar reglur gilda einnig um verðlaunafé:

  1. Ekki má veita viðtöku verðlaunum, sem eru greidd út í peningum eða ávísun á peninga.
  1. Vinni keppandi til fleiri en einna verðlauna í sama móti (eða mótasamfellu) má samanlagt verðmæti þeirra ekki vera umfram kr. 70.000.   Þetta tekur einnig til aukaverðlauna svo sem fyrir lengsta upphafshögg og högg næst holu.
  1. Ekkert hámark gildir um verðlaun fyrir að fara holu í höggi.  Þau mega auk þess koma að fullu til viðbótar sérhverjum öðrum verðlaunum í sama móti.

Skipuleggjendum og bakhjörlum golfmóta er bent á að hafa fyrirfram samband við nefndina eða skrifstofu GSÍ ef vafi leikur á, hvort fyrirhuguð verðlaun eru í samræmi við gildandi reglur

Þær upphæðir, sem tilgreinar eru í bréfi þessu, gilda til loka árs 2017.

Með óskum um gleðilegt golfsumar.

Áhugamennskunefnd GSÍ.

Gísli Guðni Hall, formaður /  ggh@law.is  
Guðmundur Friðrik Sigurðsson
Hafdís Helgadóttir                                 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ