Ólafía Þórunn Kristinsdóttir á Pure Silke LPGA mótinu á Bahamas. Mynd/seth@golf.is
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir tók risastökk á heimslistanum í golfi sem var uppfærður í dag. GR-ingurinn er í sæti nr. 197 á listanum og hefur enginn íslenskur kylfingur komist svo ofarlega á þessum lista. Ólafía Þórunn fer upp um 103 sæti frá því að listinn var uppfærður í síðustu viku. Á einu ári hefur Ólafía farið úr sæti nr. 704 á heimslistanum og upp í sæti nr. 197 eða 507 sæti.

Ólafía Þórunn náði sínum besta árangri á LPGA mótaröðinni um s.l. helgi þegar hún endaði í 4. sæti á LPGA móti í Bandaríkjunum. Hún hefur leik í þessari viku á síðasta risamóti ársins á LPGA, Evian meistaramótinu, sem fram fer í Frakklandi.

Staðan á heimslistanum er gríðarlega mikilvæg fyrir stöðu keppenda fyrir Ólympíuleikana 2020 í Tokýó í Japan.

Alls komast 60 kylfingar inn á Ólympíuleikana hjá báðum kynjum eða 120 keppendur samtals. Viðamikið kvótakerfi er í gangi varðandi þátttökurétt keppenda og er það gert til þess að sem flestar þjóðir eigi möguleika á að koma keppendum inn á ÓL.

Fimmtán efstu á heimslista karla og kvenna komast sjálfkrafa inn á ÓL 2020 en aðeins fjórir geta verið frá sama landi á þeim lista. Kvóti er á fjölda keppenda frá hverri þjóð og geta aðeins tveir að hámarki verið frá sama landi í sætum 16-59 á styrkleikalistanum.

Sem dæmi má nefna að á ÓL í Ríó de Janiero í Brasilíu árið 2016 komst Cathryn Bristow frá Nýja-Sjálandi inn á ÓL. Hún var í sæti nr. 446 þegar heimslistinn var uppfærður þann 11. júlí 2016 en það var síðasti möguleiki keppenda til þess að bæta stöðu sína á heimslistanum.

Á þeim tíma voru Ólafía Þórunn og Valdís Þóra Jónsdóttir í sætum nr. 714 og 731 á heimslistanum. Ólafía var því 268 sætum frá því að komast inn og Valdís Þóra var 285 sætum frá því að komast inn á ÓL.

Miðað við stöðuna hjá Ólafíu Þórunni núna þá væri hún í hópi þeirra sem kæmust inn á ÓL 2020.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ