Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni kepptu báða á fyrsta stigi úrtökumótsins fyrir LPGA atvinnumótaröðina í Bandaríkjunum. Lokadagurinn fór fram í gær og náði Ólafía frábærum árangri en hún endaði í 5. sæti af alls 350 kylfingum. 

Ólafía, sem er Íslandsmeistari í golfi lék hringina fjóra á  -7 eða (68-71-70-72). Hún var aðeins þremur höggum frá efsta sætinu.  Með árangri sínum tryggði Ólafía sér takmarkaðann keppnisrétt á Symetra mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Bandaríkjunum. Hún er fyrsta íslenska konan sem nær þeim árangri.

Til þess að komast inn á LPGA mótaröðina þarf Ólafía Þórunn að komast í gegnum 2. og 3. stig úrtökumótsins.  Dagana 17.-23. október keppir Ólafía á 2. stig úrtökumótsins sem fram fer á Plantation golfvellinum í Flórída.  Lokaúrtökumótið fer síðan fram í Flórída dagana 28. nóvember – 4. desember.

[pull_quote_right]Með árangri sínum tryggði Ólafía sér takmarkaðann keppnisrétt á Symetra mótaröðinni sem er næst sterkasta atvinnumótaröð kvenna í Bandaríkjunum. Hún er fyrsta íslenska konan sem nær þeim árangri.[/pull_quote_right]

Valdís Þóra náði ekki að komast í gegnum niðurskurðinn en hún lék á (81-73-73) en 130 efstu komust í gegnum niðurskurðinn og endaði Valdís 227. sæti.

Mótaröðin er sú sterkasta í heimi í kvennaflokki og eru um 350 keppendur mættir til leiks. Keppt er á þremur keppnisvöllum og komast 130 efstu í gegnum niðurskurðinn eftir þrjá keppnishringi. Alls komast 90 efstu úr þessu móti inn á 2. stig úrtökumótsins.

[pull_quote_right]Alls eru 350 keppendur sem taka þátt og komast 130 efstu í gegnum niðurskurðinn. Alls komast 90 kylfingar áfram af þessu stigi komast á 2. stig úrtökumótsins. Til þess að komast alla leið á LPGA þarf að fara í gegnum þrjú stig á úrtökumótum. [/pull_quote_right]

Úrtökumótið fór fram í Kaliforníu og var gríðarlegur hiti á svæðinu. Keppt var á Dinah og Palmer völlunum á Mission Hills svæðinu og einnig á Gary Player vellinum á Westin Mission Hills.

Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/seth@golf.is
Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/seth@golf.is

Jon Zadek var aðstoðarmaður Ólafíu í þessu móti en hann var kylfuberi hjá Ólafíu þegar hún tryggði sér keppnisrétt á LET Evrópumótaröð kvenna í desember á s.l. ári.

Upplýsingar um skor keppenda og rástíma má nálgast hér:

Þeir 130 kylfingar sem komast í gegnum niðurskurðinn eftir 54 holur hafa með árangri sínum tryggt sér keppnisrétt á Symetra atvinnumótaröðinni í Bandaríkjunum. Mótaröðin er sú næst sterkasta í Bandaríkjunum og er með svipuðu sniði og LET Access mótaröðin í Evrópu þar sem Valdís Þóra og Ólafía Þórunn hafa báðar leikið á undanförnum misserum. Ólafía er með keppnisrétt á LET Evrópumótaröðinni sem er sú sterkasta í Evrópu.


Ef keppendur á úrtökumótinu fyrir LPGA mótaröðina leika á 88 höggum eða verr á fyrstu þremur hringjunum er þeim vísað úr mótinu.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ