Ólafía Þórunn og Valdís Þóra bregða á leik. Mynd/GSÍ/HJ
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr GR og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni komust ekki áfram á úrtökumótinu fyrir Opna bandaríska meistaramótið. Ólafía lék hringina tvo á +7 samtals og endaði í 44. sæti (77-74). Valdís endaði í 53. sæti á +9 (75-78).

Mótið fór fram á Buckinghamshire vellinum rétt utan við London.

Fimm efstu kylfingarnir komust áfram á risamótið og voru þeir kylfingar á -3, -4 og -5 höggum undir pari eftir 36 holur.

Lokastaðan:

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ