/

Deildu:

Auglýsing

Tilkynnt var um val á Íþróttafólki Reykjavíkur í gær. Í tilefni dagsins bauð borgarstjórinn, Dagur B. Eggertsson, til móttöku í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur.

Allt frá árinu 1979 hefur stjórn Íþróttabandalags Reykjavíkur valið Íþróttamann Reykjavíkur og var þetta því í 38.sinn sem hátíðin fór fram. Í ár voru í fjórða sinn kjörin Íþróttakarl og Íþróttakona Reykjavíkur auk þess sem að Íþróttalið ársins í Reykjavík var valið.

Íþróttakona Reykjavíkur 2016 er kylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Ólafía Þórunn var á dögunum fyrst íslenskra kylfinga til að vinna sig inn á PGA mótaröðina í golfi. Hún er Íslandsmeistari kvenna í golfi og setti mótsmet á Íslandsmótinu með því að leika á -11 samtals. Íþróttalið Reykjavíkur 2016 er lið KR í körfuknattleik karla sem varð bæði Íslands- og bikarmeistari á árinu.

Íþróttakarl Reykjavíkur 2016 er kraftlyftingamaðurinn Júlían Jóhann Karl Jóhannsson úr Glímufélaginu Ármanni. Júlían varð heimsmeistari í réttstöðulyftu í flokki fullorðinna og heims- og Evrópumeistari ungmenna á árinu ásamt því að setja ótal Íslands- og Norðurlandamet. Hann er stigahæsti íslenski kraftlyftingamaðurinn frá upphafi.

Tíu einstaklingar og fimmtán lið frá tíu félögum voru verðlaunuð fyrir frábæran árangur á árinu 2016 í dag. Íþróttafólkið og íþróttafélögin sem að liðunum standa fengu bæði áletraða verðlaunagripi og peningastyrk í verðlaun en heildarupphæð styrkjanna var 4.500.000 krónur. Íþróttabandalag Reykjavíkur og Íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur veittu styrkina.

Liðin sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2016:

· Ármann – Bikarmeistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum karla

· Ármann – Bikarmeistarar í liðakeppni í áhaldafimleikum kvenna

· GR – Íslandsmeistarar á Íslandsmóti golfklúbba kvenna í golfi

· ÍR – Bikarmeistarar í keilu kvenna

· ÍR – Íslands- og bikarmeistarar í keilu karla

· Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í sveitakeppni karla

· Júdófélag Reykjavíkur – Bikarmeistarar í sveitakeppni kvenna

· Keilufélag Reykjavíkur – Íslandsmeistarar í keilu kvenna

· KR – Íslands- og bikarmeistarar í körfuknattleik karla

· KR – Íslandsmeistarar í liðakeppni kvenna í borðtennis

· TBR – Íslandsmeistarar í liðakeppni beggja kynja í badminton

· Valur – Bikarmeistarar í handknattleik karla

· Valur – Bikarmeistarar í knattspyrnu karla

· Víkingur – Íslandsmeistarar í liðakeppni karla í borðtennis

· Þórshamar – Íslandsmeistarar í kata karla

Einstaklingarnir sem fengu verðlaun fyrir árangurinn á árinu 2016:

· Aníta Hinriksdóttir, ÍR

· Anton Sveinn McKee, Ægir

· Árni Björn Pálsson, Fákur

· Ásdís Hjálmsdóttir, Ármann

· Brynjar Þór Björnsson, KR

· Eygló Ósk Gústafsdóttir, Ægir

· Helgi Sveinsson, Ármann

· Irina Sazonova, Ármann

· Júlían Jóhann Karl Jóhannsson, Ármann

· Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR

Borgarstjórinn í Reykjavík, Dagur B. Eggertsson og formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur, Ingvar Sverrisson, afhentu íþróttafólkinu og forsvarsmönnum íþróttafélaganna verðlaunin í gær.

15578386_1626326457392996_2197177712631303781_n

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ