Ólafía Þórunn Kristinsdóttir.
Auglýsing

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir skrifaði nýjan kafla í golfsögu Íslands þegar hún hóf leik á KPMG-mótinu á LPG-mótaröðinni. Ólafía er fyrsti íslenski kylfingurinn sem leikur á einu af risamótunum á atvinnumótaröð.

Ólafía komst ekki í gegnum niðurskurðinn að loknum tveimur hringjum. Hún lék samtals á +5 (74-73) en hún hefði þurft að leika tveimur höggum betur til þess að komast í gegnum niðurskurðinn. Ólafía var á parinu eftir 9 holur en hún náði þremur fuglum í röð á 9., 1., og 2. holu. Í kjölfarið fékk hún fjóra skolla í röð sem gerði út um vonir hennar að komast áfram.

Fylgst var með gangi mála hjá Ólafíu á Twittersíðu GSÍ og má sjá færslurnar hér fyrir neðan.

Einnig var ítarleg umfjöllun um allar holurnar hjá Ólafíu á Visir.is 

Hér verður hægt að fylgjast með gangi mála hjá Ólafíu. 


Mótið hét áður PGA meistaramótið mótið og er eitt af fimm risamótum hvers árs á LPGA-mótaröðinni. Ólafía Þórunn er fyrsti íslenski kylfingurinn sem leikur á einu af risamótunum. Hún vann sér inn keppnisrétt með því að bæta stöðu sína á stigalista LPGA mótaraðarinnar þar sem Ólafía er með keppnisrétt.

KPMG-mótið fer fram á Olympia Fields Country Club í Illinois í Bandaríkjunum en mótið hefur farið fram frá árinu 1955. Fyrsti keppnisdagurinn er fimmtudagurinn 29. júní og verða leiknir fjórir hringir. Að loknum 36 holum verður niðurskurður í keppendahópnum.

Brooke Henderson frá Kanada hefur titil að verja en Inbee Park frá Suður-Kóreu hafði sigrað þrívegis í röð áður en Henderson rauf sigurgöngu hennar í fyrra.

Að því loknu er hún með nægi­lega mörg stig í LPGA-mótaröðinni í ár til að vera með keppn­is­rétt á KPMG-mót­inu sem fram fer í Olymp­ia Fields í Ill­in­o­is og hefst fimmtu­dag­inn 29. júní en lýk­ur sunnu­dag­inn 2. júlí.

Ólafía fer á 1. teig klukk­an 9:30 að staðar­tíma í Ill­in­o­is-ríki á fimmtu­dag­inn eða kl. 14.30 að íslenskum tíma. Wen­dy Dool­an frá Ástr­al­íu og Annie Park frá Banda­ríkj­un­um verða með Ólafíu í ráshóp fyrstu tvo keppnisdagana.

Olymp­ia Fields er par 70 og 6.714 metra langur. Heildarverðlaunaféð á mótinu er tæplega 380 milljónir kr.

Eins og áður segir eru risamótin alls fimm hjá LPGA mótaröðinni. Þau eru:

ANA Inspiration
KPMG PGA Championship
U.S. Women’s Open
Women’s British Open
The Evian Championship

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ