Frá Honda-Classic mótinu á Eimskipsmótaröðinni á Garðavelli.
Frá Honda-Classic mótinu á Eimskipsmótaröðinni á Garðavelli.
Auglýsing

Búið er að opna umsóknarsvæði Ferðasjóðs íþróttafélaga. Frestur til að skila inn umsóknum vegna keppnisferða innanlands á fyrirfram ákveðin styrkhæf mót á árinu 2016 rennur út á miðnætti mánudaginn 9. janúar 2017.

Öll íþrótta- og ungmennafélög innan vébanda ÍSÍ geta sótt um styrki í sjóðinn. Til úthlutunar að þessu sinni eru 97 milljónir króna. Styrkir úr sjóðnum verða greiddir út í febrúar.

Hægt er að fara inn á umsóknarsvæðið með því að smella hér https://vefir.isi.is/ferdastyrkir/

Við stofnun umsóknar er send vefslóð á uppgefið netfang tengiliðar, sem nýtist sem lykill inn á viðkomandi umsókn þar til umsókn er send. Umsækjendur eru hvattir til að vanda frágang umsókna til að auðvelda og einfalda úrvinnslu þeirra. Listi yfir styrkhæf mót opnast í kerfinu þegar búið er að stofna umsókn.

Ef nánari upplýsinga er þörf, vinsamlegast hafið samband við Höllu Kjartansdóttur skrifstofustjóra ÍSÍ í síma 514 4000 eða í gegnum netfangið halla@isi.is

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ