Auglýsing

Það var skemmtileg stund sem fram fór í Grafarholti í kvöld þegar tekið var á móti Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur. Hún tryggði sér með eftirminnilegum hætti keppnisrétt á sterkustu atvinnumótaröð í heimi um síðustu helgi og verður á meðal keppenda á LPGA mótaröðinni á næsta ári. Ólafía er sú fyrsta frá Íslandi sem kemst inn á mótaröð bestu kylfinga heims í Bandaríkjunum.

Margir tóku þátt í því að samgleðjast með Ólafíu og og fjölskyldu hennar í Grafarholtinu. Sýnt var beint í tvígang á Stöð 2 frá athöfninni og RÚV var einnig með beina útsendingu.

Björn Víglundsson formaður GR, Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ, Dagur B. Eggertsson borgarstjóri Reykjavíkur, Lárus Blöndal foseti ÍSÍ og Hólmfríður Einarsdóttir stjórnarmaður í Forskot afrekssjóð tóku öll til máls og sendu Ólafíu bestu kveðjur. Athygli vakti hversu hnitmiðaðar og snarpar ræður kvöldsins voru.

GR veitti Ólafíu eina milljón kr. í styrk fyrir afrekið en framundan er kostnaðarsamt keppnisár á stærsta golfsviði veraldar.

img_1993

Ólafía hélt frábæra ræðu þar sem hún þakkaði GR-ingum sérstaklega fyrir að hafa alið sig upp sem kylfing, fjölskyldan fékk hjartnæmar kveðjur frá Ólafíu. Atvinnukylfingurinn sagði m.a. án stuðnings frá Forskoti afrekssjóði væri hún ekki þessum sporum, hún þakkaði einnig GSÍ, þjálfurum sínum og öllum öðrum sem hafa stutt við bakið á henni kærlega fyrir hjálpina.

[pull_quote_right]Ólafía sagði að mesta reynslan sem hún hafi fengið í lífinu væri að gera mistök[/pull_quote_right]

Í ræðu Ólafíu kom margt áhugavert í fram og þar hvatt hún yngri kylfinga til þess að setja sér markmið, hafa trú á sér og reyna að bæta sig í litlum skrefum. Hún sagði að mesta reynslan sem hún hafi fengið í lífinu væri að gera mistök, vera óhrædd við að prófa sig áfram, og læra af reynslunni.

Fjölmargir yngri kylfingar voru mættir í Grafarholtið og góðu ráðin frá Ólafíu voru svo sannarlega hvetjandi fyrir þau. Ræða hennar var tilfinningarík og hafði mikil áhrif á hennar nánustu vini og fjölskyldu.

[pull_quote_left]Ræða hennar var tilfinningarík og hafði mikil áhrif á hennar nánustu vini og fjölskyldu.[/pull_quote_left]

Eins og áður segir voru fjölmargir mætti í Grafarholtið og umgörðin var svo sannarlega glæsileg. Á annað hundrað útiljós römmuðu inn aðkomu gesta að Grafarholtinu og innandyra var notarlegt andrúmsloft þar sem gleðin leyndi sér ekki eins og sjá má myndunum hér fyrir neðan.

Fleiri myndir á fésbókarsíðu Golf á Íslandi.

img_1956img_2073

img_2025

img_1932img_1935img_2011img_2125img_2128img_2161 img_2164 img_2167img_2142img_2044

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ