/

Deildu:

Gísli Sveinbergsson.
Auglýsing
Markvissar æfingar hjá Gísla fækkuðu röngum hreyfingum

Úr 1. tbl. Golf á Íslandi 2015.
Gauti Grétarsson er einn reyndasti sjúkraþjálfari landsins en hann hefur unnið með mörgum af bestu íþróttamönnum Íslands. Gauti hefur á undanförnum árum leiðbeint afrekskylfingum, sem og öðrum kylfingum, í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur. Þar leggur Gauti aðaláherslu á að bæta stöðugleika, jafnvægi og vöðvakraft – og fækka röngum hreyfingum sem orsaka óæskilegt boltaflug hjá kylfingum.

Gísli Sveinbergsson, landsliðsmaður úr Keili, er einn af mörgum afrekskylfingum sem hafa æft af krafti hjá Gauta. Í samtali við Golf á Íslandi sagði Gísli að hann hafi tekið miklum framförum og ekki hafi verið vanþörf á að bæta líkamlegt ástand hans á þessu sviði.

„Ég er mun stöðugri sem kylfingur og finn mikinn mun á mér. Það er samt sem áður verk að vinna og ég þarf að leggja miklu meira á mig til þess að ná markmiðunum,” sagði Gísli. „Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar – og í raun þarf ég að slá færri golfbolta á æfingum þar sem ég fæ oft á tíðum meira út úr þessum æfingum en að slá golfbolta. Ég næ mun fleiri 100% höggum úti á velli eftir að ég fór að æfa hjá Gauta,” bætti hann við en Gísli æfði um tíma allt að fjórum sinnum í viku í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur í vetur.

Gauti notar m.a. greiningartækin K – vest og Kine live við golfgreiningar. K – vest er þrívíddargreinir og með Kine eru rafeindamælitæki fest á líkama kylfingsins.

„Með þeim hætti er hægt að sjá tímaröð hreyfinga í baki, mjöðmum og höndum þegar golfhögg er slegið. Mælingin er gerð með hreyfinemum sem settir eru á bak, mjaðmir og hendi og sýna afstöðu á milli þessara líkamshluta í golfsveiflunni. Nemarnir sýna einnig hraðann sem þessir líkamshlutar ná á hverjum tíma þegar höggið er slegið.

Mikilvægt er að krafturinn og hraðinn í golfsveiflunni sé mestur á þeim tíma sem kylfuhausinn hittir golfboltann,” segir Gauti.

Mælingar sem hægt er að gera á kylfingum hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur eru; Kin Com, Kine, K-vest háhraðamælingar, Flywheel bremsumælingar, Metronome taktmælingar, hopp- og lendingarmælingar, hnébeygjugreiningar, veikleikagreiningar, golfsveiflu hreyfigreiningar og jafnvægismælingar.

[pull_quote_center]K vinkill er munurinn á snúningi á mjöðm og öxlum. Ef þessi vinkill er lítill verður höggstyrkur minni þar sem teygjan sem líkaminn myndar í högginu er takmörkuð. Þetta orsakar minni högglengd og í raun er verið að sóa krafti í stað þess að byggja upp kraft til að slá boltann lengra.[/pull_quote_center]

Gísli bætist við góðan hóp úr afreksíþróttum á Íslandi sem æfir undir handleiðslu Gauta. Á meðal þeirra sem hafa farið í gegnum slíkt eru Gylfi Þór Sigurðsson,, Guðjón Valur Sigurðsson, Björgvin Sigurbergsson, Ólöf María Jónsóttir, Ólafur Loftsson Guðmundur Benediktsson og Birgir Leifur Hafþórsson.

Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.
Gísli Sveinbergsson.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ