/

Deildu:

Valdís Þóra Jónsdóttir. Mynd/LET/Tristan Jones
Auglýsing

Valdís Þóra Jónsdóttir, atvinnukylfingur úr Leyni á Akranesi, náði frábærum árangri á LET Access mótinu sem fram fer í Sviss. Valdís endaði í fimmta sæti en hún lék hringina þrjá á pari vallar samtals, 70-71-75. Valdís var aðeins þremur höggum frá efsta sætinu og er þetta næst besti árangur hennar á næst sterkustu mótaröð Evrópu.

Mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu á eftir LET Evrópumótaröðinni þar sem Valdís Þóra er með keppnisrétt. Valdís Þóra hefur leikið á þremur mótum á LET Evrópumótaröðinni og komist í gegnum niðurskurðinn á þeim öllum.

Þetta er í annað sinn sem Valdís Þóra keppir á LET Access mótaröðinni á þessu ári. Hún lék á móti í Frakklandi í mars en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ