/

Deildu:

Auglýsing

Kristján Þór Einarsson úr Golfklúbbnum Kili hefur eins högg forystu í karlaflokki á sjötta móti Eimskipsmótaraðarinnar sem leikin er á Garðavelli Akranesi. Í kvennaflokki leiðir Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni. Á morgun leika kylfingar annan hringinn af þremur en mótinu lýkur á sunnudaginn.

Kristján Þór lék hringinn í dag á 69 höggum eða  3 höggum undir pari,  skorkortið Kristjáns innihélt í dag,12 pör, 3 fugla og einn örn sem hann fékk á 16 holu. Í öðru sæti á 70 höggum eða 2 höggum undir pari er Guðni Fannar Carrico úr Golfklúbbi Suðurnesja. Axel Bóasson úr Golfklúbbnum Keili, Stefán Már Stefánsson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur eru jafnir í þriðja sæti en þeir léku hringinn í dag á 73 eða á 1 höggi yfir pari.

Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er í forystu í kvennaflokki á 71 höggi eða 1 höggi undir pari, Valdís fékk í dag 4 fugla, 12 pör, 1 skolla og 1 skramba(+2). í öðru sæti er Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur á 72 höggum eða á pari vallarins. Í þriðja sæti er Þórdís Geirsdóttir úr Golfklúbbnum Keili á 75 höggum eða 3 höggum yfir pari.

 

Karlaflokkur:

1.sæti Kristján Þór Einarsson,                    GKJ, 69 -3

2.sæti Guðni Fannar Carrico,                      GS, 70 -2

3-5.sæti Stefán Már Stefánsson,                GR, 73 +1

3-5.sæti Axel Bóasson,                               GK. 73 +1

3-5.sæti Guðmundur Á. Kristjánsson          GR, 73 +1

 

Kvennaflokkur:

Valdís Þóra Jónsdóttir,                               GL, 71   -1

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir,                       GR, 72   par

Þórdís Geirsdóttir,                                      GK, 75   +3

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ