Auglýsing

Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands meðal þátttakenda á Íslandsmótinu í höggleik 2014. Haukur Örn er í viðtali í nýjasta tölublaði Golf á Íslandi sem kom út í vikunni.

„Ég hef aldrei áður tekið þátt í stigamóti á vegum Golfsambands Íslands, hvað þá í sjálfu Íslandsmótinu. Ég hef hins vegar verið viðloðandi þessi mót um afar langt skeið fyrir hönd sambandsins. Það má því segja að ég þekki skipulagshlið mótanna vel en mig langar til að upplifa mótið frá sjónarhóli kylfingsins. Þar fyrir utan fannst mér tilvalið, í ljósi þess að ég uppfylli forgjafarskilyrði mótsins, að forseti Golfsambandsins taki þátt í mótinu. Það er ekki á hverjum degi sem það tækifæri gefst. Ég held að þetta verði mjög skemmtilegt, að minnsta kosti ætla ég að njóta hverrar mínútu,“ segir Haukur Örn Birgisson, forseti Golfsambands Íslands en hann verður í hópi þátttakenda á Íslandsmótinu í höggleik á Leirdalsvelli.

Hefur það gerst áður að forseti GSÍ hafi tekið þátt í Íslandsmóti  í höggleik?

„Ég þekki það ekki, það er að minnsta kosti langt síðan. Það má vel vera að forseti sambandsins hafi tekið þátt í mótinu þegar keppendur voru færri og sambandið var minna en ekki eftir að fyrirkomulagi þess og nafni var breytt í Íslandsmótið í höggleik.“

Hefur þú undirbúið þátttöku þína sérstaklega?

„Ég get ekki sagt það. Ég leik eingöngu golf af félagslegum ástæðum, þ.e. ég leik golf með vinum eða fjölskyldu og ekki mikið oftar en einu sinni í viku. Ég er því miður ekki nógu duglegur að æfa mig og hef aldrei verið. Ég set golfkylfurnar í bílskúrinn á haustin og tek þær aftur fram á vorin. Ég hef samt náð að halda forgjöfinni í kringum fjóra undanfarinn áratug og vonast til að hanga á forgjöfinni fram eftir aldri. Ég mun samt setja aukinn kraft í æfingar fyrir mótið því ég ætla að reyna að standa mig vel. Kylfuberi minn í mótinu og frændi, Birgir Sverrisson, hefur haft mikinn metnað fyrir verkefninu og hefur skammað mig mikið fyrir slakan undirbúning. Hann vill ekki þurfa að taka fram kaddýgallann fyrir einungis tvo keppnisdaga.“

Ertu bjartsýnn á gott gengi, hvað er markmiðið?

„Maður sigrar ekki nema vera með og þar sem ég verð meðal þátttakenda þá er möguleiki á því að ég standi uppi sem sigurvegari, fræðilegur möguleiki. Það yrði skemmtilegt ef ég þyrfti að afhenda sjálfum mér bikarinn í leikslok, ég á hins vegar ekki von á því. Að öllu gamni slepptu þá er markmiðið að komast í gegnum niðurskurðinn. Ef það tekst þá verð ég mjög sáttur við sjálfan mig.“

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ