Auglýsing

Viðamiklar breytingar á golfreglunum taka gildi frá og með áramótum 2019.

20 mikilvægustu breytingarnar á golfreglunum eru eftirfarandi:

1. Leitartími – Styttur úr 5 mínútum í 3 mínútur.

2. Bolti hreyfist við leit – Lagður aftur á fyrri stað (vítalaust).

3. Sokkinn bolti – Vítalaus lausn utan brauta.

4. Mæling þegar bolti er látinn falla – Lengsta kylfan (önnur en pútter) notuð.

5. Bolti látinn falla – Úr hnéhæð, í stað axlarhæðar.

6. Ekki leyfilegt að taka sér stöðu á rangri flöt – Vítalaus lausn.

7. Leikmaður slær bolta í sjálfan sig eða útbúnað sinn – Vítalaust.

8. Bolti tvísleginn – Talið sem eitt högg (vítalaust).

9. Tilfallandi snerting á sandi í glompu leyfð.

10. Fjarlægja má lausung hvar sem er.

11. Taka má lausn úr glompu gegn tveimur vítahöggum.

12. Vatnstorfærur kallast vítasvæði.

13. Leyfilegt að snerta vatn eða jörð innan vítasvæðis.

14. Bolti hreyfist á flöt eftir að hafa verið merktur, lyft og lagður niður aftur – Lagður aftur á fyrri stað, vítalaust.

15. Bolti hreyfður fyrir slysni á flötinni – Lagður aftur á fyrri stað, vítalaust.

16. Lagfæra má svo til allar skemmdir á flötum.

17. Ekki má leggja kylfu niður til að aðstoða við miðun.

18. Kylfuberi má ekki aðstoða við miðun.

19. Leyfilegt að hafa flaggstöngina í holunni þegar púttað er.

20. Bolti sem er skorðaður við flaggstöng telst í holu.

Golfsamband Íslands gaf nýverið út „leikmannaútgáfa golfreglnanna“ en ritinu er dreift til kylfinga um allan heim. Þetta eru ekki leiðbeiningar um golfreglurnar heldur stytt útgáfa reglnanna þar sem lögð er áhersla á þig, kylfinginn.

GSÍ og tryggingafélagið Vörður eru í samstarfi í þessu verkefni.

Ritið fer í prentun fljótlega hjá GSÍ og verður því dreift til kylfinga við fyrsta tækifæri.

Rafræna útgáfu er að finna hér á golf.is. 

Markmiðið með leikmannaútgáfunni er að kynna reglurnar á auðskildari hátt og með áherslu á það sem þú, kylfingurinn, þarft að vita til að leika samkvæmt reglunum.

Eftirfarandi eru nokkur aðalatriði leikmannaútgáfunnar.

Hún er gild reglubók. Hún lítur út eins og aðalreglubókin og er með sambærilegri uppbyggingu. Þótt texti hennar sé styttur veitir hún sömu svör og aðalreglubókin.

Í leikmannaútgáfunni er lögð áhersla á þær reglur sem skipta þig mestu sem leikmann. Þar á meðal eru reglurnar sem lýsa grunnatriðum golfs – til dæmis að leika samkvæmt reglunum og í anda leiksins, ólíkir hlutar vallarins og útbúnaðurinn sem þú mátt nota – auk þeirra reglna sem oftast þarf að nota.

Þótt útgáfan nái ekki til sumra aðstæðna sem koma sjaldan við sögu í golfleiknum vísar hún til nánari upplýsinga um aðstæðurnar í aðalreglubókinni með tilvísun.

Leikmannaútgáfan er skrifuð þannig að hún vísar til þín, kylfingsins. Þessi stíll, að setja kylfinginn í forgrunn, er annað lykilskref í að gera reglurnar aðgengilegri.

Útgáfan inniheldur skýringamyndir og töflur til að útskýra reglurnar á sjónrænan hátt.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ