Alls fengu 23 golfklúbbar úthlutun úr viðbótarframlag úr síðari úthlutun í aðgerðum ÍSÍ og ríkisstjórnarinnar til að bæta það tjón sem einingar innan ÍSÍ urðu fyrir vegna afleiðinga Covid-19 faraldursins. Vorið 2020 var úthlutað alls 450 milljónum kr. og nýverið var úthlutað 300 milljónum kr. til viðbótar. Um er að ræða framlag til íþróttafélaga sem starfrækja íþróttastarf fyrir börn og unglinga 6-18 ára.
Nánar má lesa um þessa úthlutun á vef ÍSÍ.
224 íþrótta- og ungmennafélög hljóta greiðslu að þessu sinni og er það í höndum aðalstjórna íþróttafélaga að ráðstafa framlaginu innan síns félags til þeirra deilda/verkefna sem hafa orðið fyrir tjóni vegna Covid-19.
Framlagið er ætlað til þess að koma til móts við það tjón sem hefur orðið innan íþróttahreyfingarinnar á Íslandi.
Yfirlit yfir greiðslur til íþrótta- og ungmennafélaga – Almennar aðgerðir II
Klúbbur | Upphæð |
Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar | 2,355,933 |
Golfklúbburinn Oddur | 833,278 |
Golfklúbbur Mosfellsbæjar | 763,001 |
Golfklúbburinn Keilir | 602,369 |
Golfklúbburinn Leynir | 595,676 |
Golfklúbbur Akureyrar | 414,966 |
Golfklúbbur Selfoss | 234,255 |
Golfklúbbur Suðurnesja | 207,483 |
Golfklúbbur Vestmannaeyja | 197,443 |
Golfklúbbur Álftaness | 157,285 |
Golfklúbbur Sauðárkróks | 150,592 |
Golfklúbburinn Hamar | 143,899 |
Golfklúbbur Fjallabyggðar | 127,167 |
Golfklúbburinn Nesklúbburinn | 120,474 |
Golfklúbbur Fjarðabyggðar | 110,434 |
Golfklúbbur Byggðarholts | 100,395 |
Golfklúbbur Bolungarvíkur | 97,048 |
Golfklúbbur Öndverðarness | 93,702 |
Golfklúbbur Vatnsleysustrandar | 93,702 |
Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs | 87,009 |
Golfklúbbur Kiðjabergs | 76,969 |
Golfklúbbur Þorlákshafnar | 76,969 |
Golfklúbbur Reykjavíkur | 73,623 |