Verðlaunagripirnir fyrir Íslandsmeistarana í golfi.
Auglýsing

Undankeppni fyrir Íslandsmótið í golfi 2024 fer fram á Hólmsvelli í Leiru mánudaginn 15. júlí n.k.

Þar verður keppt um tvö sæti í karlaflokki – og tvö sæti í kvennaflokki.

Þetta er í annað sinn sem slík undankeppni fer fram – en gríðarlegur áhugi var hjá kylfingum að taka þátt á Íslandsmótinu í golfi 2024.

Í undankeppninin eru keppt í höggleik í flokki karla og kvenna án forgjafar, leiknar verða 18 holur.

Alls eru 35 keppendur sem taka þátt í undankeppni fyrir Íslandsmótið í golfi 2024.

Konurnar eru alls 8 og komast tvær efstu inn á keppendalistann á Íslandsmótinu í golfi sem hefst fimmtudaginn 18. júlí á Hólmsvelli í Leiru. Nú þegar eru 55 konur á keppendalistanum og verða þær alls 57.

Í karlaflokki eru alls 27 leikmenn sem keppa um 2 laus sæti á keppendalistanum í karlaflokki. Nú þegar eru 94 karlar á keppendalistanum og verða þeir alls 96.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Samtals verða 153 keppendur á Íslandsmótinu í golfi 2024, 96 karlar og 57 konur.

Þetta er í annað sinn sem slík undankeppni fer fram en alls voru 201 sem skráðu sig í Íslandsmótið. Þetta er annað árið í röð þar sem að skráningar í Íslandsmótið fara yfir 200.

Keppendur í kvennaflokki í undankeppninni fyrir Íslandsmótið í golfi 2024:

Nafn Klúbbur Forgjöf
Gabríella Neema StefánsdóttirGolfklúbbur Mosfellsbæjar4.8
Íris Lorange KáradóttirGolfklúbburinn Oddur5.1
Elva María JónsdóttirGolfklúbburinn Keilir5.5
Kara Líf AntonsdóttirGolfklúbbur Akureyrar6.3
Hekla Ingunn DaðadóttirGolfklúbbur Mosfellsbæjar6.3
Tinna Alexía HarðardóttirGolfklúbburinn Keilir7.2
Erla Marý SigurpálsdóttirGolfklúbbur Mosfellsbæjar8.2
Erla Rún KaaberGolfklúbbur Selfoss8.5

Keppendur í karlaflokki í undankeppninni fyrir Íslandsmótið í golfi 2024:

Nafn Klúbbur Forgjöf
Máni Páll EiríkssonGolfklúbbur Selfoss0.7
Hafsteinn Thor GuðmundssonGolfklúbburinn Hamar Dalvík1.1
Björn Breki HalldórssonGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar1.1
Hjalti JóhannssonGolfklúbburinn Keilir1.1
Arnór Már AtlasonGolfklúbbur Reykjavíkur1.2
Guðmundur Freyr SigurðssonGolfklúbbur Suðurnesja1.6
Jóhannes SturlusonGolfklúbbur Reykjavíkur1.6
Halldór Viðar GunnarssonGolfklúbbur Reykjavíkur1.7
Kári KristvinssonGolfklúbburinn Leynir1.8
Þorsteinn Brimar ÞorsteinssonGolfklúbbur Reykjavíkur1.8
Jón EysteinssonGolfklúbbur Reykjavíkur1.9
Máni Freyr VigfússonGolfklúbburinn Keilir2.1
Kristján Karl GuðjónssonGolfklúbbur Mosfellsbæjar2.3
Haraldur BjörnssonNesklúbburinn2.4
Óli Björn BjarkasonGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar2.5
Eggert Kristján KristmundssonGolfklúbbur Reykjavíkur2.5
Kristian Óskar SveinbjörnssonGolfklúbbur Mosfellsbæjar2.5
Halldór Ásgrímur IngólfssonGolfklúbburinn Keilir2.6
Halldór JóhannssonGolfklúbburinn Keilir2.6
Orri Snær JónssonNesklúbburinn2.6
Guðlaugur Þór ÞórðarsonGolfklúbburinn Leynir2.7
Víkingur Óli EyjólfssonGolfklúbburinn Keilir3
Albert Garðar ÞráinssonGolfklúbbur Borgarness3.3
Oddgeir JóhannssonGolfklúbburinn Keilir3.6
Nói ClaxtonGolfklúbburinn Leynir4
Benjamín Snær ValgarðssonGolfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar4.2

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ