Atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús leikur á tveimur mótum í Ástralíu á næstu vikum.
Mótin eru hluti af DP World Tour atvinnumótaröðinni – sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu.
Haraldur Franklín fékk boð um að taka þátt með skömmum fyrirvara en á meðal keppenda eru heimsþekktir kylfingar.
Dagana 23.-26. nóvember keppir Haraldur Franklín á Royal Queensland vellinum í Brisbane á PGA meistaramóti Ástralíu (Australian PGA Championship).
Haraldur Franklín lék fyrsta hringinn á 70 höggum eða 1 höggi undir pari vallar. Hann fékk fjóra fugla (-1), einn skolla (+1) og einn skramba (+2) á hringnum. Haraldur Franklín var í 51. sæti eftir 1. hringinn.
Á öðrum keppnisdegi lék Haraldur Franklín á einu höggi yfir pari vallar eða 72 höggum. Hann fékk þrjá skolla (+1) og tvo fugla (-1) á hringnum. Hann er í 64. sæti og er 12 höggum frá efsta sætinu. Haraldur Franklín komst í gegnum niðurskurðinn en alls komust 80 kylfingar áfram eftir 36 holur á pari vallar samtals eða betra skori.
Heimamennirni Min Woo Lee og Adam Scott eru efstir á -12 undir pari vallar.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit á Australian PGA Championship:
Sýnt er frá mótinu á Viaplay.is
Dagana 30. nóvember – 3. desember keppir Haraldur Franklín á Opna ástralska mótinu (ISPS HANDA Australian Open) sem fram fer á The Lakes vellinum í Sydney.
Haraldur Franklín lék á lokaúrtökumótinu fyrir DP World Tour nýverið þar sem hann komst í gegnum niðurskurð mótsins og endaði í 77. sæti. Með þeim árangri náði hann að tryggði sér keppnisrétt á flestum mótum á Challenge Tour, Áskorendamótaröðinni, á næsta tímabil. Mótin í Ástralíu eru því kærkomið tækifæri fyrir Harald Franklín.