Vinsælasti golfklúbburinn!

Deildu:

Athugið að tilkynning og skokortið verður að uppfylla reglur Einherjaklúbbsins, sjá hér neðar.
Senda þarf mynd af skorkortinu með skráningunni til að hún teljist gild.

Um klúbbinn

Til Íslands kemur þessi íþrótt í kringum 1930. Fyrsti golfvöllurinn sem til er hér á landi er á svæði, þar sem nú er Laugardalslauginn og Laugardalsknattspyrnuvöllurinn í Reykjavík.

Hann var opnaður með pomp og pragt 12.mai 1935. Hefur hann sjálfsagt þótt fínn á þeim árum en hann var þarna á hluta af bújörð, þar sem mikill fjöldi kúa og kinda voru á beit. Á þessum velli var fyrsta golfmótið á Íslandi haldið. Fór það fram 18.ágúst 1935 og voru keppendur allir þeir sem þá stunduðu þessa íþrótt hér á landi eða samtals 23.

Ekki fór neinn maður holu í höggi í því móti og liðu heil fjögur ár þar til fyrsti maðurinn á Íslandi vann það afrek. Var það Halldór Hansen læknir sem það gerði á fögrum sumardegi árið 1939 á gamla GR vellinum, þar sem nú er Kringlan í Reykjavík og önnur mannvirki.

Ekki fara miklar sögur af svona afrekum hjá íslenskum kylfingum eftir það. Einn og einn mun þó hafa náð draumahögginu en ekki var gert mikið úr því nema þá í viðkomandi leikhóp eða golfklúbbi.

Sumarið 1967 fara nokkrir áhugasamir kylfingar, sem allir áttu það sameiginlegt að hafa farið holu í höggi í golfinu, að tala um það að stofna félag afreksmanna á þessu sviði. Það varð úr og þann 17.október 1967 stofnuðu 9 menn og 1 kona félag sem þau nefndu EINHERJAR. Í stofnbréfinu segir:

Þessir félagar hafa allir unnið það sér til ágætis, að hafa leikið holu í einu höggi og tveir af þeim gert það tvisvar. Tilgangurinn með stofnun þessari var og er að fá alla í félagið sem til þess hafa unnið. Flestir er hafa farið holu í einu höggi eru þegar félagar í „Bols Hole In One Club“ sem er í Hollandi og verðlaunar alla sem afrekið hafa unnið.

Það er von stofnendanna, að allir þeir sem hafa til þess unnið gerist meðlimir, en þeir munu vera fáir sem vitað er um.

Stofnendurnir eru þessir: Ólöf Geirsdóttir, Geir Þórðarson, Guðlaugur Guðjónsson, Jóhann Eyjólfsson, Jón Þór Ólafsson, Lárus Arnórsson, Ólafur Ágúst Ólafsson, Páll Ásgeir Tryggvason, Sigurjón Hallbjörnsson, Sverrir Guðmundsson.

Fyrsti formaður Einherjaklúbbsins var Páll Ásgeir Tryggvason. Sigurjón Hallbjörnsson tók síðan við af honum. Árið 1975 tilkynnti stjórn Einherjaklúbbsins eftir Einherjamót á Nesvellinum að Kjartan L.Pálsson yrði næsti formaður, þar sem hann hefði þá farið oftast holu í höggi af öllum Íslendingum eða sex sinnum. Síðan 2008 hefur Einherjaklúbburinn verið í umsjón skrifstofu GSÍ.

Einherjaklúbburinn
Formaður: Guðmundur Óskarsson
Farsími: 664-1100
Netfang: einherjar@golf.is

Gildir frá 1. maí 2023.

Eftirfarandi eru þær reglur sem þarf að uppfylla til þess að fá holu í höggi viðurkennda.

1. Leika þarf minnst 9 holur og vera með minnst einn meðspilara (vitni).

2. Höggið verður að vera það fyrsta sem slegið er af teig í átt að holu sem staðsett er á hefðbundinni flöt brautarinnar.
2.1 Tímabundin flöt sem er sett utan hefðbundinnar flatar, sökum viðhalds eða ástands, getur talist sem hefðbundinn flöt brautar, svo fremi sem öll önnur skilyrði séu uppfyllt.
2.2 Golfvöllur sem er í vetrar uppsetningu á teigum og flötum er ekki gjaldgengur, þó svo önnur skilyrði séu uppfyllt.

3. Golfvöllurinn sem afrekið er unnið á verður að hafa vallarmat og vægi frá USGA eða EGA. Á íslandi er það Golfsambandið sem hefur einkaleyfi á að meta golfvelli á Íslandi í samræmi við reglur Golfsambands Evrópu (EGA) og Golfsambands Bandaríkjanna (USGA).

4. Ekki er viðurkennd “Hola í höggi” af par 3 holu völlum eða áþekkum stuttum æfingavöllum.

5. Völlurinn þarf að vera minnst 4.000 metra langur miðað við 18 holur.

6. Brautin sem afrekið er unnið á verður að vera minnst 75 metrar að lengd.

7. Skorkort verður að fylla rétt út. Á það skal einnig rita nafn, nafn vallar, dagsetningu, heimilisfang og kennitölu leikmannsins, ásamt undirritun ritara. Einnig er tekið gilt skráð skorkort í gegnum kerfi GSÍ (golf.is) svo fremi sem ritari hafi staðfest skorkortið.

8. Fylla þarf út og senda inn formið hér á síðunni: „Tilkynna holu í höggi“. (Athugið að senda þarf inn með forminu rafrænt afrit af skorkortinu eða skjámynd af korti úr kerfi GSÍ).

9.Kylfingur verður einnig að tilkynna um afrekið til klúbbstjórnar eða starfsmanns á þeim golfvelli þar sem það var unnið

Í lok hvers árs fá þeir sem fara “Holu í höggi” viðurkenningu fyrir afrekið frá Einherjaklúbbnum.

Stjórn Einherjaklúbbs Íslands

Tölfræði

Það geta ekki allir verið Einherjar og það sýnir tölfræðin glögglega. Árlega eru innan við 1% kylfinga sem ná þessum áfanga.

Frá fyrstu skráningum, árið 1936, hafa um 3.000 draumahögg íslensks kylfingsins verið skráð.

Af 40.000 kylfingum á Íslandi ná einungis um 130 að fara holu í höggi á ári hverju.
6. holan á Korpúlfsstaðavelli er sú hola sem oftast hefur verið farið holu í höggi á síðustu tíu árum.
17. holan í Grafarholti og „Bergvíkin“ 3. holan á Hólmsvelli eru þær holur sem virðast vera hvað erfiðastar viðureignar, og minnstar líkur á að fara holu í höggi.

Skoðaðu tölfræðina nánar

Stofnaður 1967

Þann 17. október 1967 stofnuðu 9 menn og 1 kona félag sem þau nefndu EINHERJAR

Fyrsti formaður

Fyrsti formaður Einherjaklúbbsins var Páll Ásgeir Tryggvason.

Fyrsti Einherjinn

Sagan nær aftur til 1939, en þá fór Halldór Hansen fyrstur allra holu í höggi á Íslandi.

160

Kylfingar ná að meðaltali draumahögginu á ári hverju

90

Kylfingar hafa átt draumahöggið á 6. holu á Korpúlfsstöðum sem er lang algengasta holan.

14

Íslendingar hafa farið holu í höggi 5 sinnum eða oftar

Áhugaverðar staðreyndir

  • Það geta ekki allir verið Einherjar og það sýnir tölfræðin glögglega. Árlega eru vel innan við 1% kylfinga sem ná þessum áfanga.
  • Frá fyrstu skráningum, árið 1936, hafa ríflega 4.000 draumahögg íslensks kylfingsins verið skráð.
  • Af 24 .000 kylfingum sem eru skráðir í golfklúbb á Íslandi ná einungis um 150 að fara holu í höggi á ári hverju.
  • 6. holan á Korpúlfsstaðavelli er sú hola sem oftast hefur verið farið holu í höggi á síðustu tíu árum.
  • 17. holan í Grafarholti og „Bergvíkin“ 3. holan á Hólmsvelli eru þær holur sem virðast vera hvað erfiðastar viðureignar, og minnstar líkur á að fara holu í höggi.
  • Fyrsti formaður Einherjaklúbbsins var Páll Ásgeir Tryggvason.
  • Sagan nær aftur til 1939, en þá fór Halldór Hansen fyrstur allra holu í höggi á Íslandi.
  • Þann 17.október 1967 stofnuðu 9 menn og 1 kona félag sem þau nefndu EINHERJAR
  • Um 160 Kylfingar ná að draumahögginu á ári hverju.
  • 13 Íslendingar hafa farið holu í höggi 5 sinnum eða oftar.
  • 88 Kylfingar hafa átt draumahöggið á 6. holu á Korpúlfsstöðum sem er lang algengasta holan.

Draumahöggið

Draumahöggið er árlegur viðburður haldinn af Einherjaklúbbnum í samstarfi við Nesklúbbinn og helstu styrktaraðila.

Kylfingar sem hafa farið holu í höggi á tímabilinu 1. september til 31. ágúst og hafa samþykkta skráningu hjá Einherjaklúbbnum hafa unnið sér rétt til þáttöku á því ári sem Draumahöggið er haldið.
Hver kylfingur fær möguleika á að slá eitt högg á par 3 holu og vinna sér inn þau verðlaun sem eru í boði hverju sinni. Aðeins eitt högg er fyrir hvern kylfing óháð fjölda hola í höggi á tímabilinu.

Hafðu samband

Í lok golftímabilsins eru sendar viðurkenningar Einherjaklúbbsins til þeirra sem hafa náð draumahögginu og hafa sent inn tilkynningu um það hérna á síðunni. Þessi viðurkenning er gömul hefð í Einherjaklúbbnum. Þetta er eina viðurkenningin eða staðfestingin sem hver og einn fær fyrir þetta afrek. Sannur Einherji heldur því þó ávallt á lofti að hann eða hún hafi sko farið holu í höggi.

Deildu:

Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ