Í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna, þann 8. mars, standa Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélag Íslands (UMFÍ) fyrir ráðstefnunni „Konur og íþróttir, forysta og framtíð.“
Umfjöllunarefni ráðstefnunnar eru konur í forystuhlutverki í stjórnum, dómgæslu og þjálfun.
Rætt verður um helstu áskoranir sem konur í íþróttum standa frammi fyrir og þau tækifæri sem þeim býðst, sem og hvernig og hvers vegna það er mikilvægt að konur séu áberandi í forystu í íþróttahreyfingunni.
Á það við um þátttöku í stjórnum, dómgæslu eða þjálfun á afreksstigi.
Ráðstefnustjóri verður Ragnheiður Ríkharðsdóttir úr framkvæmdastjórn ÍSÍ.
Ráðstefnan fer fram á Fosshóteli, Þórunnartúni 1, þann 8. mars á milli klukkan 09:00 – 12:30.
Aðgangur er ókeypis en nauðsynlegt er að skrá á viðburðinn og er skráningin opin til 6. mars. Skráning fer fram hér – (google.com).
Fyrir þau sem ekki komast, verður streymt frá ráðstefnunni.
Boðið verður upp á morgunhressingu og er viðburðurinn opinn öllum kynjum, sem áhugasöm eru efnið og daginn.
Nánari upplýsingar um viðburðinn á Facebook: Konur & íþróttir – forysta og framtíð | Facebook
Dagskrá
Setning ráðstefnunnar
Þórey Edda Elísdóttir, fyrsti varaforseti ÍSÍ.
Eru einhverjar áskoranir kvenna í forystu íþrótta?
Viðar Halldórsson félagsfræðingur
Ferðalagið innan knattspyrnuheimsins
Klara Bjartmarz, fráfarandi framkvæmdastjóri KSÍ
Tækifæri til að hafa áhrif
Hulda Bjarnadóttir, forseti Golfsambands Íslands
Pallborðsumræður
Að fóta sig í karllægum heimi
Bríet Bjarnadóttir, alþjóðlegur knattspyrnudómari
Segðu já!
Erna Héðinsdóttir, dæmir á ÓL í París í lyftingum
Mikilvægi dómgæslu í íþróttum
Hlín Bjarnadóttir, dæmir á Ól í áhaldafimleikum
Að breyta leiknum
Hulda Mýrdal, Heimavöllurinn
Hvað borðið þið eiginlega?
Díana Guðjónsdóttir handboltaþjálfari
Að þjálfa konur vs karla, er einhver munur?
Gunnar Páll Jóakimsson frjálsíþróttaþjálfari
Hagsmunasamtök kvenna í knattspyrnu (HKK)
Lára Hafliðadóttir situr í stjórn HKK
Hvað gerum við nú – stutt rafræn samantekt
Áfram veginn!
Auður Inga Þorsteinsdóttir, framkvæmdastjóri UMFÍ
ÍSÍ og UMFÍ hvetja öll kyn til að mæta og láta sig varða um málefnið!