Alls eru sjö keppendur sem tengjast íslenskum golfklúbbum á Sand Valley Spring Series Final sem hófst í dag á samnefndum velli í Póllandi. Mótið er hluti af Nordic Golf League sem er í þriðja efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í karlaflokki í Evrópu.
Mótið er það þriðja og síðasta sem fram fer á þessum golfvelli í þessari keppnistörn.
Aron Snær Júlíusson, Sigurður Arnar Garðarsson, Bjarki Pétursson, Hlynur Bergsson,, Kristófer Orri Þórðarson og Ragnar Garðarsson allir úr GKG eru á meðal keppenda og Kristófer Karl Karlsson, GM, tekur einnig þátt.
Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit í þessu móti.
Smelltu hér fyrir stigalistann á Nordic Golf League 2024:
Aron Bergsson og Hákon Harðarson er einnig á meðal keppenda. Aron hefur keppt undir merkjum GKG á Íslandi en hann er búsettur í Svíþjóð og keppir fyrir Hills golfklúbbinn þar í landi. Hann er bróðir Andreu Bergsdóttur sem hefur verið að gera það gott í bandaríska háskólagolfinu að undanförnu. Hákon hefur keppt undir merkjum GR hér á landi hann er búsettur í Danmörku og leikur fyrir danska golfklúbbinn Royal Golf Klub.
Eins og áður segir er þetta þriðja mótið í röð sem fram fer í Póllandi. Aron Snær Júlíusson náði bestum árangri íslensku kylfingina á fyrsta mótinu þar sem hann endaði í þriðja sæti. Og Bjarki Pétursson varð sjöundi á öðru mótinu í þessari keppnistörn.
Það er að miklu að keppa á Nordic Golf League. Þeir keppendur sem ná að sigra á þremur mótum á tímabilinu fá keppnisrétt á Challenge Tour – Áskorendamótaröðinni sem er í næst efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki. Fimm efstu sætin á stigalistanum gefa einnig keppnisrétt á Challenge Tour á næsta tímabili – en heildarfjöldi kylfinga sem fá keppnisrétt á Challenge mótaröðinni er 5.
Haraldur Franklín Magnús, Axel Bóasson og Guðmundur Ágúst Kristjánsson hafa allir farið þessa leið til þess að öðlast keppnisrétt á Challenge Tour.