Íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík og Golfsamband Íslands stóðu að málþingi um stuðning foreldra í golfiðkun barna. Málþingið fór fram fimmtudaginn 16. maí s.l. Háskólanum í Reykjavík og var málþingin vel sótt.
Fyrirlesarar voru Sveinn Þorgeirsson, íþróttafræðingur og háskólakennari við íþróttafræðideild HR og Ólafur Björn Loftsson, landsliðsþjálfari og afreksstjóri Golfsamband Íslands.
Rætt var um stuðningshlutverk foreldra á mismunandi aldurs- og getustigum barnsins.
Fyrilestrarnir voru teknir upp og er hlekkur á upptökuna hér fyrir neðan.