Fyrsta mót tímabilsins á Unglingamótaröð GSÍ 2024 fer fram á Kirkjubólsvelli í Sandgerði dagana 25.-26. maí.
Mótaröðin fyrir kylfinga á aldrinum 15-18 ára .
Athugið að skráningu lýkur á miðnætti fimmtudaginn 23. maí
Keppt verður í einum aldursflokki á Unglingamótaröðinni á þessu tímabili og fleiri mót eru í boði en áður.
Einnig er keppt um Stigameistaratitla og Íslandsmeistaratitla í höggleik og holukeppni í aldursflokkunum 15-16 ára og 17-18 ára.
Eitt af markmiðum Unglingamótaraðarinnar er að gefa bestu kylfingum landsins 18 ára og yngri fleiri tækifæri á stigasöfnun á heimslista áhugakylfinga.
Fyrsta mót tímabilsins er í lok maí en mótin eru öll 54 holur og verður niðurskurður eftir tvo hringi í hverju höggleiksmóti. Með því að fækka aldursflokkum gefast jafnframt fleiri tækifæri fyrir þátttöku forgjafarhærri kylfinga á Unglingamótaröðinni.
Keppt er í stúlkna- og piltaflokki og er hámarksforgjöf í báðum flokkum 20.0.
25.-26. maí | Unglingamótaröðin | GSG | Sandgerði |
6.-8. júní | Unglingamótaröðin | GKG | Kópavogur/Garðabær |
30.-31. júlí | Unglingamótaröðin | GK | Hafnarfjörður |
16.-18. ágúst | Íslandsmótið í höggleik | GM | Mosfellsbær |
24.-26. ágúst | Íslandsmótið í holukeppni | GSG | Sandgerði |
31. ágúst-1.sept. | Unglingamótaröðin | Ekki ákveðið | Ekki ákveðið |
7.-8. sept. | Unglingamótaröðin | GR | Reykjavík |
Ef smellt er á myndina þá opnast Hlaðvarpsþáttur þar sem að Ólafur Björn Loftsson afreksstjóri GSÍ fer yfir helstu áherslur og breytingar á Unglingamótaröð GSÍ 2024.
Þátturinn er einnig í heild sinni hér fyrir neðan.