#image_title
Auglýsing

Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Haraldur Franklín Magnús og Axel Bóasson eru á meðal keppenda á Kaskáda Golf Challenge sem fram fer á Kaskáda golfsvæðinu í Tékklandi. Mótið hefst fimmtudaginn 13. júní og lokadagurinn er 16. júní.

Mótið er hluti af Challenge Tour mótaröðinni, sem er næst sterkasta atvinnumótaröð í karlaflokki í Evrópu.

Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit:

Haraldur Franklín er að leika á sínu áttunda móti á þessu tímabili. Sjá nánar hér.

Guðmundur Ágúst og Axel eru að leika á sínu sjötta móti á tímabilinu á þessari mótaröð. Sjá nánar hér með árangur Guðmundar, og hér með árangur Axels.

Í lok tímabilsins komast 45 efstu á lokamótið þar sem að keppt er um 20 sæti á DP World Tour, sem er í efsta styrkleikaflokki atvinnumótaraða í Evrópu í karlaflokki.

Alls eru 29 mót á Challenge Tour á þessu tímabili og er mótið í Tékklandi það tólfta á þessu tímabili.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ