Andrea Bergsdóttir er komin áfram í 32-manna úrslit á The Women’s Amateur Championship, Opna breska áhugamannamótið, sem fram fer á Portmarnock á Írlandi dagana 24.- 29. júní.
Andrea endaði í 15. sæti í höggleiknum og lék hún í 64-manna úrslitum í morgun.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék einnig á þessu móti en hún komst ekki áfram eftir höggleikinn.
Andrea sigraði Moa Stridth frá Svíþjóð 4&3 – og leikur Andrea á fimmtudagsmorgun í 32-manna úrslitum. Mótherji Andreu er Anna Foster frá Írlandi.
Smelltu hér fyrir úrslit úr holukeppninni:
Mótið er eitt af sterkustu áhugamannamótum veraldar. Mótið á sér langa sögu en það fór fyrst fram árið 1893. Meðalforgjöf keppenda er +4.5 en alls eru 144 keppendur á mótinu. Á fyrstu tveimur keppnisdögunum er leikinn höggleikur, alls 36 holur, og 64 efstu komast áfram í holukeppnina.
Leona Maguire, Georgia Hall og Anna Nordqvist eru á meðal fyrrum sigurvegara á þessu móti. Sigurvegarinn fær boð um að taka þátt á risamótum á borð við AIG Women’s Open, US Women’s Open, The Amundi Evian Championship, Chevron Championship, og hefð hefur skapast að sigurvegarinn fái boð um að taka þátt á National Women’s Amateur Championship sem fram fer á Augusta vellinum í Bandaríkjunum.
Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í höggleiknum:
Portmarnock golfvöllurinn er staðsettur rétt við borgina Dublin á Írlandi og er á meðal þekktust golfvalla Bretlandseyja.