Frá viðburðinum á Ekkjufellsvelli. Mynd/GFH
Auglýsing

Golfklúbbur Fljótsdalshéraðs og Golfklúbbur Seyðisfjarðar héldu nýverið stelpugolfdaga sem voru vel sóttir. Um 40 konur mættu á viðburðinn á Ekkjufellsvelli og tæplega 30 mættu á Hagavöll á Seyðisfirði. 

Þátttakan fór langt fram úr björtustu vonum þrátt fyrir að veðrið hafi ekki verið sem best.

Stelpugolfdagurinn er átak sem GSÍ, KPMG og PGA á Íslandi standa fyrir í samvinnu við golfklúbba í landinu og er ætlað að freista þess að heilla fleiri stelpur og konur í íþróttina en töluvert hallar á kvenkynið almennt í golfinu á Íslandi.

Í viðtali við Austurfrétt segir formaður Golfklúbbs Fljótsdalshéraðs, Friðrik Bjartur Magnússon, að hlutfall kvenna í golfíþróttinni á austurlandi sé lægra en meðaltal á landsvísu.

„Ég kíkti á tölfræðina í golfinu almennt fyrir nokkru og mér sýnist almennt að um þriðjungur meðlima í klúbbunum víðast hvar séu kvenkyns. En hér á Austurlandi, hugsanlega með golfklúbbinn í Neskaupstað sem undantekningu, er hlutfallið mun lægra eða undir 20 prósentum. Í því ljósi var ekkert minna en frábært hversu margar konur mættu og fengu kynningu og kennslu, tóku þátt í þrautum auk þess sem boðið var upp á veitingar og gjafir. Það veit sannarlega á gott hve þátttakan var góð og vonandi verður það til að fjölga konunum í golfinu hér og annars staðar.“

 

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ