Auglýsing

Heimsmeistaramót stúlknaliða í golfi fer fram í Kanada næstu daga og er Ísland á meðal þeirra þjóða sem leika á því móti.

Keppnisfyrirkomulagið er höggleikur þar sem leiknar verða 72 holur, 18 holur á dag. Tvö bestu skorin í hverri umferð telja í liðakeppninni – en einnig er keppt í einstaklingskeppni. Þetta er í annað sinn sem Íslands fær boð um að taka þátt á þessu móti.

Lið Íslands er þannig skipað: Auður Bergrún Snorradóttir, Eva Kristinsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir. Ólafur Björn Loftsson, afreksstjóri GSÍ, er með liðinu sem þjálfari og Baldur Gunnarsson er sjúkraþjálfari liðsins.

Ísland er í 14. sæti þegar keppni er hálfnuð.

Eva Kristinsdóttir er í 13. sæti í einstaklingskeppninni á 1 höggi yfir pari samtals (72-73).
Perla Sól Sigurbrandsdóttir er í 34. sæti á +5 samtals (73-76).
Auður Bergrún Snorradóttir er í 60. sæti á +14 samtals (81-77).

Þetta er í níunda sinn sem þetta mót fer fram en fyrst var keppt árið 2014 en ekki var keppt 2020 og 2021 vegna heimsfaraldurs.

Sigurvegarinn í einstaklingskeppninni fær boð um að taka þátt á LPGA atvinnumóti sem fram fer í Kanada.

Smelltu hér fyrir stöðuna í liðakeppninni:

Smelltu hér fyrir stöðuna í einstaklingskeppninni:


Þjóðirnar sem taka þátt eru:

Belgía
Kanada 1
Kanada 2
Taívan
England
Finnland
Perú
Svíþjóð
Danmörk
Þýskaland
Ísland
Írland
Mexíkó
Suður-Kórea
Spánn
Sviss
Kólumbía
Tékkland
Frakkland
Hong Kong
Ítalía
Marokkó
Pólland
Bandaríkin

Eins og áður segir er þetta er í annað sinn sem Ísland fær boð um að taka þátt á þessu móti.

Í fyrra endaði Ísland í 20. sæti. Helga Signý Pálsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir skipuðu lið Íslands á því móti.

Deildu:

Auglýsing
Auglýsing

Fylgstu með GSÍ á samfélagsmiðlunum

Hlökkum til að sjá þig á samfélagsmiðlum GSÍ