Landsmót í golfhermum 2025 er hafið en það er í fjórða sinn sem mótið fer fram.
Mótið hefur heppnast afar vel síðustu ár en sýnt er frá mótinu í beinni útsendingu í sjónvarpi.
Landsmótið er mót sem GSÍ styður við sem hluta af öðru mótahaldi sambandsins en GKG er framkvæmdaraðili mótsins.
Landsmótsmeistarar í golfhermum frá upphafi:
Ár | Konur | Karlar |
2024 | Sara Kristinsdóttir, GM | Sigurður Arnar Garðarsson, GKG |
2023 | Saga Traustadóttir, GKG | Sigurður Arnar Garðarsson, GKG |
2022 | Saga Traustadóttir, GKG | Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG |
Í ár spreyta keppendur sig á Hvaleyrarvelli þar sem Íslandsmótið í golfi fer fram í ágúst.
Allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ hafa þátttökurétt en hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar.
Fyrir neðan má sjá keppnisskilmála mótsins en mótið er opið í Trackman Virtual Golf 2 Tournaments kerfinu og geta keppendur hafið leik eftir skráningu með sínum TrackMan aðgangi í hvaða TrackMan golfhermasetri á landinu.
Keppnisfyrirkomulag
Leikinn er höggleikur án forgjafar í karla- og kvennaflokki.
Tvær undankeppnir fyrir Landsmótið verða haldnar, 18 holur hvor undankeppni.
Dagsetningar
Fyrri undankeppni fer fram 27. janúar til 16. mars og komast 48 efstu karlar og 24 efstu konur í
seinni undankeppnina sem haldin verður 17. mars til 20. apríl 2025. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir halda áfram.
Hægt er að taka þátt í undankeppnum hvar sem eru TrackMan golfhermar, með þeim möguleika
að pútta. Stillingar mótsins tryggja að vallaraðstæður séu eins hvar sem leikið er.
Efstu 8 karlar og efstu 8 konur komast í úrslitakeppnina, Landsmótið, sem haldið verður 25. apríl
2025 í Íþróttamiðstöð GKG. Ef leikmenn eru á sama skori og sá sem er með lakastan árangur þeirra sem halda áfram gilda seinni 9, síðan seinustu 6, loks seinustu 3 og svo 1. Ef enn er jafnt skal varpa hlutkesti.
Skor úr undankeppnum fylgja ekki yfir í úrslitakeppnina. Leiknar eru 36 holur til úrslita um titilinn Landsmeistari í golfhermum.
Ef leikmenn eru að jafnir í efsta sæti skal leikinn bráðabani þangað til úrslit nást. Ekki skal leikinn
bráðabani ef jafnt er í öðrum sætum.
Vallaruppsetning
Undankeppnir og úrslit eru leiknar á TrackMan Virtual Golf2 Keilir GC.
Stillingar eru fyrirfram ákveðnar og eru eins í öllum hermum. Brautir og flatir eru stilltar á medium
mýkt og miðlungs hraða (flatir 9 fet á Stimp). Holustaðsetningar eru medium. Enginn vindur. Pútt eru hluti af leiknum og hermir því stilltur á Manual pútt. Hermir gefur pútt innan við 2,4 metra.
Leikið er af hvítum teigum í karlaflokki (6301 m) og bláum (5300 m)í kvennaflokki.
Sérregla
Í þeim tilvikum sem TrackMan bætir við höggi vegna tæknilegra orsaka (t.d. ef hermir telur högg þó um æfingasveiflu sé að ræða), þá er heimilt að velja mulligan og endurtaka höggið. Kerfið skráir að leikmaður hafi tekið mulligan, og mun mótsstjórn skoða þau tilfelli sem slíkt er valið. Ef leikmaður hefur valið mulligan án þess að hafa gilda ástæðu til þess, fær viðkomandi frávísun úr mótinu. Mótsstjórn mun skera úr um öll tæknileg tilfelli sem koma upp meðan á leik stendur.
Þátttökuréttur og skráning
Allir gildir félagsmenn í golfklúbbum innan vébanda GSÍ hafa þátttökurétt.
Skráningarferill í fyrri undankeppni:
Hér er linkur á skortöflu í kvennaflokki: https://tm-short.me/RuGxHMO
Hér er linkur á skortöflu í karlaflokki: https://tm-short.me/RHwuxyP
Mótið er opið í TrackMan Tournaments kerfinu og geta keppendur hafið leik eftir að keppandi fer í
TrackMan hermi og skráir sig inn með sínum aðgangi í TrackMan Golf appinu. Smellt er á valmöguleikann “Tournaments” og í framhaldi Landsmót í golfhermum – fyrri
undankeppni (karla eða kvenna), og loks “Play tournament”. Í undankeppnum greiða þátttakendur fyrir notkun á hermi þar sem það á við. Ekkert aukagjald er tekið fyrir þátttökuna í mótinu.
Verðlaun eftir úrslitakeppni 25. apríl:
Veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í hvorum flokki auk þess sem sigurvegarar fá farandbikar.
- sæti: 130.000 kr.
- sæti: 50.000 kr.
- sæti: 30.000 kr.
Mótsstjórn
Úlfar Jónsson, Sigmundur Einar Másson, Brynjar Geirsson.
Hafið samband við Úlfar ulfar@gkg.is ef spurningar vakna.
Birt með fyrirvara um breytingar