Arnór Snær Guðmundsson, GHD lék vel á fyrsta hring Evolve Spanish Junior Championship mótinu sem hófst á Spáni í dag en þar keppa sex Íslensk ungmenni.
Arnór Snær lék hringinn i dag á 71 höggi +1 og er sem stendur í 11. sæti. Stefán Þór Bogason, Gr lék á 75 höggum, +3, Henning Darri Þórðarson, GK lék á 76 höggum, +4 og Björn Óskar Guðjónsson, GKj lék á 79 höggum, +7. Tvær Íslenskar stúlkur eru meðal keppenda, þær Helga Kristín Einarsdóttir NK, sem lék á 83 +11 og Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK, sem lék á 88 höggum, +16
Keppnisrétt hafa kylfingar 19 ára og yngri, alls verða leiknir þrír hringir á mótinu sem lýjur á laugardag. Keppendur eru hluti af afrekshópi GSÍ voru styrktir af sambandinu til ferðarinnar.
Hægt er að fylgjast með skori keppenda hér.
Uppfært kl:16:15
Eftirfarandi kylfingar keppa á mótinu. 11. sæti Arnór Snær Guðmundsson GHD, 71 -1 35. sæti Stefán Þór Bogason GR, 75 +3 47. sæti Henning Darri Þórðarson GK, 76 +4 65. sæti Björn Óskar Guðjónsson GKJ, 79 +7 30. sæti Helga Kristín Einarsdóttir NK, 83 +11 35. sæti Hafdís Alda Jóhannsdóttir GK, 88 +16