Keppt var á áskorendamótaröð Íslandsbanka á Kötluvelli hjá Golfklúbbi Húsavíkur. Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir frá Golfklúbbi Ólafsfjarðar sigraði í flokki stelpna 14 ára og yngri á 112 höggum. Í flokki stráka 14 ára og yngri sigraði Kristófer Tjörvi Einarsson úr Golfklúbbi Vestmannaeyja sem sigraði en hann spilaði völlinn á 80 höggum. Kylfingar frá Húsavík tryggðu sér sigurinn í flokki dengja og pilta, Agnar Daði Kristjánsson sigraði flokk drengja 15-16 ára á 93 höggum og Reynir Örn Hannesson sigraði flokk pilta 17-18 ára á 89 höggum.
Stelpur 14 ára og yngri:
1.sæti Guðrún Fema Sigurbjörnsdóttir GÓ 112 högg
2-3.sæti Sigrún Linda Baldursdóttir GKJ 121 högg
2-3.sæti Kristín Sól Guðmundsdóttir GKJ 121 högg
Strákar 14 ára og yngri:
1.sæti Kristófer Tjörvi Einarsson GV 80 högg
2.sæti Aron Emil Gunnarsson GOS 88 högg
3.sæti Mikael Máni Sigurðsson GA 95 högg
Drengir 15-16 ára
1.sæti Agnar Daði Kristjánsson GH 93 högg
Piltar 17-18 ára
1.sæti Reynir Örn Hannesson GH 89 högg