Síðastliðið haust var hafist handa við sex holu æfingavöllinn og verður hann kláraður í sumar og vonandi hægt að opna hann um mitt sumar 2016. Einnig er farin af stað vinna vegna uppbyggingar á nýju æfingasvæði með yfirbyggðu æfingaskýli. Það er GA félaginn Steinmar H. Rögnvaldsson sem hefur séð um hönnun og teikningar á skýlinu og er óhætt að fullyrða að þetta lofi mjög góðu. Skýlið verður staðsett við vestur hlið fjóssins og fara núverandi 8. og 9. braut undir æfingasvæðið.
Á myndum má sjá þríviddar teikningu af fyrirhuguðu skýli. Þetta er ekki endanlega útgáfa en á væntanlega ekki eftir að breytast mikið. Til að byrja með verða ekki hurðar á öllum básunum og efri hæðin verður ekki fullkláruð.
Þarna verða 15 básar, þar af tveir í lokuðu kennslurými. Hægt verður að bæta við allt að 15 í viðbót ofan á skýlinu eins og sést á meðfylgjandi myndum. Í kjallara hússins verða svo bílastæði fyrir uppundir 30 golfbíla/golfhjól ásamt klósettaðstöðu og ca 160 skápum fyrir golfsett.
Áætlað er að þetta opni snemma sumars 2016 og verður þá aðstaða til golfiðkunar á Jaðri eins og best verður á kosið
Nafnasamkeppni – verðlaun fyrir vinningstillöguna
Ákveðið hefur verið að efna til samkeppni um nafn á nýja æfingasvæðinu okkar.
Tillögum skal skila til Ágústar á póstfangið agust@gagolf.is eða á skrifstofu GA í Golfhöllinni.
Frestur til að skila inn tillögum rennur út sunnudaginn 22. mars. Í boði fyrri sigurtillögunina er 20 þúsund króna úttekt í golfbúð GA á Jaðri.
Sjá nánar hér