Aron Snær Júlíusson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar og Helga Kristín Einarsdóttir úr Nesklúbbnum leiða í flokki pilta og stúlkna 17-18 ára á Íslandsbankaröðinni sem leikið er á jarðarsvelli um helgina. í þessum flokknum eru leiknar 54 holur en í yngri flokkum eru leiknar 36 holur. Þetta er breyting sem gerð var til þess að tryggja að mótið telji til stiga á áhugamannalista Evrópu.
Aron Snær sem í flokki pilta 17-18 ára en hefur leikið tvo fyrstu hringina á 144 höggum eða á 2 höggum yfir pari. jafnir í örðu til þriðja sæti eru heimamaðurinn Ævarr Freyr Birgisson og Egill Ragnar Gunnarsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 11 höggum yfir pari.
Helga Kristín leiðir með sex höggum í flokki stúlkna 17-18 ára, Helga Kristín hefur leikið hringina tvo á 155 höggum. Í öðru sæti er Sigurlaug Rún Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Keili á 161 höggi og þriðja er Alexandra Eir Grétarsdóttir úr Golfklúbbi Selfoss.
Drengir 17-18 ára.
1.sæti Aron Snær Júlíusson GKG 67/77 = 144 +2
2-3.sæti Ævarr Freyr Birgisson GA 75/78 = 153 +11
2-3.sæti Egill Ragnar Gunnarsson GKG 74/79 = 153 +11
Stúlkur 17-18 ára.
1.sæti Helga Kristín Einarsdóttir NK 77/78 = 155 +13
2.sæti Sigurlaug Rún Jónsdóttir GK 79782 = 161 +19
3.sæti Alexandra Eir Grétarsdóttir GOS 79/87 0 166 +24