Íslandsmótinu í holukeppni á Íslandsbankamótaröð barna – og unglinga lauk í dag á Strandavelli á Hellu. Mikil spenna var á lokadeginum en undanúrslitin fóru fram í morgun og úrslitaleikirnir eftir hádegið í dag. Kylfingar úr Golfklúbbi Akureyrar voru sigursælir á þessu móti en GA fór heim með þrjá titla af alls sex.
Íslandsmeistarar 2015 í holukeppni: Zuzanna Korpak (GS) 15-16 ára, Sigurður Arnar Garðarsson (GKG) 14 ára og yngri, Eva Karen Björnsdóttir (GR) 17-18 ára, Andrea Ásmundsdóttir (GA) 14 ára og yngri; aftari röð: Kristján Benedikt Sveinsson (GA) 15-16 ára og Tumi Hrafn Kúld (GA) 17-18 ára.
Tumi Hrafn og Sigurður Arnar vörðu báðir titlana í sínum flokki frá því í fyrra:
Úrslit urðu eftirfarandi:
Stúlkur
14 ára og yngri:
15-16 ára:
17-18 ára:
Piltar 14 ára og yngri:
15-16 ára:
17-18 ára: