Markvissar æfingar hjá Gísla fækkuðu röngum hreyfingum
Úr 1. tbl. Golf á Íslandi 2015.
Gauti Grétarsson er einn reyndasti sjúkraþjálfari landsins en hann hefur unnið með mörgum af bestu íþróttamönnum Íslands. Gauti hefur á undanförnum árum leiðbeint afrekskylfingum, sem og öðrum kylfingum, í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur. Þar leggur Gauti aðaláherslu á að bæta stöðugleika, jafnvægi og vöðvakraft – og fækka röngum hreyfingum sem orsaka óæskilegt boltaflug hjá kylfingum.
Gísli Sveinbergsson, landsliðsmaður úr Keili, er einn af mörgum afrekskylfingum sem hafa æft af krafti hjá Gauta. Í samtali við Golf á Íslandi sagði Gísli að hann hafi tekið miklum framförum og ekki hafi verið vanþörf á að bæta líkamlegt ástand hans á þessu sviði.
„Ég er mun stöðugri sem kylfingur og finn mikinn mun á mér. Það er samt sem áður verk að vinna og ég þarf að leggja miklu meira á mig til þess að ná markmiðunum,” sagði Gísli. „Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar – og í raun þarf ég að slá færri golfbolta á æfingum þar sem ég fæ oft á tíðum meira út úr þessum æfingum en að slá golfbolta. Ég næ mun fleiri 100% höggum úti á velli eftir að ég fór að æfa hjá Gauta,” bætti hann við en Gísli æfði um tíma allt að fjórum sinnum í viku í Sjúkraþjálfun Reykjavíkur í vetur.
Gauti notar m.a. greiningartækin K – vest og Kine live við golfgreiningar. K – vest er þrívíddargreinir og með Kine eru rafeindamælitæki fest á líkama kylfingsins.
„Með þeim hætti er hægt að sjá tímaröð hreyfinga í baki, mjöðmum og höndum þegar golfhögg er slegið. Mælingin er gerð með hreyfinemum sem settir eru á bak, mjaðmir og hendi og sýna afstöðu á milli þessara líkamshluta í golfsveiflunni. Nemarnir sýna einnig hraðann sem þessir líkamshlutar ná á hverjum tíma þegar höggið er slegið.
Mikilvægt er að krafturinn og hraðinn í golfsveiflunni sé mestur á þeim tíma sem kylfuhausinn hittir golfboltann,” segir Gauti.
Mælingar sem hægt er að gera á kylfingum hjá Sjúkraþjálfun Reykjavíkur eru; Kin Com, Kine, K-vest háhraðamælingar, Flywheel bremsumælingar, Metronome taktmælingar, hopp- og lendingarmælingar, hnébeygjugreiningar, veikleikagreiningar, golfsveiflu hreyfigreiningar og jafnvægismælingar.
[pull_quote_center]K vinkill er munurinn á snúningi á mjöðm og öxlum. Ef þessi vinkill er lítill verður höggstyrkur minni þar sem teygjan sem líkaminn myndar í högginu er takmörkuð. Þetta orsakar minni högglengd og í raun er verið að sóa krafti í stað þess að byggja upp kraft til að slá boltann lengra.[/pull_quote_center]
Gísli bætist við góðan hóp úr afreksíþróttum á Íslandi sem æfir undir handleiðslu Gauta. Á meðal þeirra sem hafa farið í gegnum slíkt eru Gylfi Þór Sigurðsson,, Guðjón Valur Sigurðsson, Björgvin Sigurbergsson, Ólöf María Jónsóttir, Ólafur Loftsson Guðmundur Benediktsson og Birgir Leifur Hafþórsson.